Óvæntar vendingar í máli Pólstjörnumanna minna á mál Franklíns Steiner Birgir Olgeirsson skrifar 3. nóvember 2019 07:00 Vinur Franklíns Steiner reyndi að taka á sig sök í máli þar sem Franklín var sakaður um vörslu fíkniefna árið 1996. FBL/GVA
Óvænt framvinda í máli Pólstjörnumannanna, sem ákærðir eru fyrir amfetamínframleiðslu í Borgarfirði, minnir um margt á mál Franklíns Steiners frá tíunda áratug síðustu aldar. Þrír eru ákærðir fyrir framleiðslu á rúmum átta kílóum af amfetamíni í sumarbústað í Borgarfirði, þeir Alvar Óskarsson, Einar Jökull Einarsson og Margeir Pétur Jóhannsson. Eftir að málið hafði verið þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í september síðastliðnum barst lögreglu, saksóknara og verjendum í málinu bréf frá íslenskum manni sem ekki er ákærður í málinu. Sá sagðist bera alfarið einn ábyrgð á framleiðslunni ásamt ónefndum Pólverja. Gaf Íslendingurinn sama framburð við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Hann sagði ástæðuna fyrir játningunni vera samviskubit sem hefði nagað hann.Alvar Óskarsson og Einar Jökull eru meðal þriggja sem ákærðir eru fyrir amfetamínframleiðsluna.Vísir/VilhelmMaðurinn er góður félagi þeirra Alvars og Einars Jökuls, en þeir hlutu þunga dóma í Pólstjörnumálinu fyrir um áratug. Þeir eiga yfir höfði sér þungan dóm fyrir framleiðsluna á amfetamíninu. Getur hún varðað allt að tólf ára fangelsi. Ákæruvaldið telur frásögn félaga þeirra, sem segist bera ábyrgð á amfetamínframleiðslunni, ekki trúverðuga. Segir saksóknari að gögn málsins bendi til sektar mannanna þriggja sem eru ákærðir í málinu. Ákærðu í málinu neita sök og segja félagann bera ábyrgð á amfetamínframleiðslunni. Er það dómara að meta hvort frásögn félagans sem vill taka sökina á sig sé trúverðug.Vinur Franklíns tók á sig sökÁrið 1997 dæmdi Hæstiréttur Franklín Kristinn Steiner til 20 mánaða fangelsisvistar eftir að 252 grömm af amfetamíni, tæp 76 grömm af hassi og 6,7 grömm af maríjúana fundust á heimili hans í Hafnarfirði í apríl árið 1996. Franklín Steiner kannaðist ekki við fíkniefnin sem lögreglan fann við húsleitina. Hann taldi líkur á að félagi hans sem hafði lykil að heimili hans ætti efnin. Vinurinn mætti fyrir dóm og sagðist eiga efnin. Var vinurinn að lokum ákærður fyrir að hafa borið rangt fyrir dómi í málinu gegn Franklín Steiner.Atli Gíslason, fyrrverandi þingmaður, yfirheyrði tugi lögreglumanna og skilaði viðamikilli skýrslu um starfsemi fíkniefnadeildar á sínum tíma þegar altalað var að Franklín Steiner væri undir verndarvæng lögreglunnar. Engin ákæra var gefin út.VísirHann var sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness en Hæstiréttur sneri dómnum þar sem vinurinn var dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar fyrir falskan vitnisburð. Var Franklín Steiner ákærður fyrir hlutdeild með því að hafa hvatt vininn til að greina ranglega frá. Ekki þótti þó nægilega sannað, gegn eindreginni neitun Franklíns og vinar hans, að háttsemi Franklíns hefði verið með þeim hætti og hann því sýknaður.Sá umtalaðasti Franklín Steiner var óumdeilanlega umtalaðasti maður undirheima Íslands á tíunda áratug síðustu aldar. Var Franklín jafnan sagður hafa verið undir verndarvæng lögreglunnar gegn því að veita upplýsingar um fíkniefnamál. Fékk hann meðal annars reynslulausn eftir að hafa afplánað helming fangelsisvistar, sem hann var dæmdur fyrir árið 1989, fyrir slíkar upplýsingar.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur aðsetur á Hverfisgötu.Fréttablaðið/GVAUrðu samskipti Franklíns Steiner og lögreglunnar að svo miklu hitamáli í samfélaginu að dómsmálaráðherra ákvað árið 1997 að óska eftir því að ríkissaksóknari myndi stýra opinberri rannsókn til að staðreyna sannleiksgildi fullyrðinga um að Franklín Steiner stundaði umfangsmikil fíkniefnaviðskipti með vitund og samþykki lögreglunnar. Frægt er þegar Franklín Steiner sagðist einfaldlega hafa verið heppinn í spilakössum þegar hann var spurður út í fimm milljóna króna tekjur sem hann hafði árið 1996. Franklín Steiner lést 66 ára að aldri árið 2013.
Amfetamínframleiðsla í Borgarfirði Dómsmál Pólstjörnumálið Tengdar fréttir Vinur Pólstjörnumanna tekur á sig alla sök og segist plagaður af samviskubiti Þremenningarnir sem ákærðir eru fyrir amfetamínframleiðslu í Borgarfirði neituðu allir sök við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Íslendingur, sem sendi lögreglu, saksóknara og verjendum bréf þar sem hann lýsti yfir ábyrgð á amfetamínframleiðslunni, hélt frásögn sinni til streitu við aðalmeðferð málsins og segist plagaður af samviskubiti. 1. nóvember 2019 16:30 Sakborningar skulu víkja úr sal í amfetamínsmálinu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu saksóknara í umfangsmiklu fíkniefnamáli þess efnis að sakborningar gæfu skýrslu hver fyrir sig við aðalmeðferð málsins. Úrskurður þess efnis var kveðinn upp í morgun. Saksóknari gerði kröfuna til að koma í veg fyrir að ákærðu gætu samræmt frásögn sína. 23. október 2019 09:12 Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Sjá meira
Vinur Pólstjörnumanna tekur á sig alla sök og segist plagaður af samviskubiti Þremenningarnir sem ákærðir eru fyrir amfetamínframleiðslu í Borgarfirði neituðu allir sök við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Íslendingur, sem sendi lögreglu, saksóknara og verjendum bréf þar sem hann lýsti yfir ábyrgð á amfetamínframleiðslunni, hélt frásögn sinni til streitu við aðalmeðferð málsins og segist plagaður af samviskubiti. 1. nóvember 2019 16:30
Sakborningar skulu víkja úr sal í amfetamínsmálinu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu saksóknara í umfangsmiklu fíkniefnamáli þess efnis að sakborningar gæfu skýrslu hver fyrir sig við aðalmeðferð málsins. Úrskurður þess efnis var kveðinn upp í morgun. Saksóknari gerði kröfuna til að koma í veg fyrir að ákærðu gætu samræmt frásögn sína. 23. október 2019 09:12