„Þetta á enn eftir að síast inn, maður er alveg ... ég veit ekkert hvað ég er að segja. Þetta er geggjuð tilfinning,“ sagði framherjinn Óttar Magnús Karlsson í sæluvímu eftir að hafa tryggt Víkingum 1-0 sigur á FH í úrslitum Mjólkurbikarsins með marki úr vítaspyrnu.
„Maður er ekki alveg búinn að átta sig á því. Það er mikið búið að tala um hvað það er langt síðan við unnum síðast og þetta er bara byrjunin á því sem koma skal. Við ætlum bara að halda áfram en auðvitað ætlum við að fagna mjög vel í kvöld,“ sagði Óttar Magnús um hvað titillinn þýðir fyrir knattspyrnufélagið Víking.
„Ég verð að viðurkenna að ég var frekar stressaður, þetta var ekki eins og hvert annað víti sem maður tekur,“ sagði Óttar um tilfinninguna þegar hann gekk að vítapunktinum til að taka vítaspyrnuna sem tryggði á endanum sigurinn.
„Algjörlega. Hvernig hann leggur leikinn upp og talar við fjölmiðla gefur okkur extra kraft sem og öllum í kringum liðið. Við vorum samstíga í þessu og sigldum þessu heim,“ sagði Óttar að lokum um það að hvernig Arnar Gunnlaugsson, þjálfari liðsins, talaði um það í aðdraganda leiksins og hvort það hefði aukið sjálfstraust leikmanna.
Óttar Magnús: Þetta er bara það sem koma skal

Tengdar fréttir

Arnar: Breytingin á hópnum á 10 mánðum er ótrúleg og þeir eru búnir að breyta ásýnd klúbbsins.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var eðlilega mjög sáttur með sigur liðsins í Mjólkurbikarnum í knattspyrnu í dag en hann ætlar sér stærri hluti á komandi misserum.

Sölvi Geir: Er draumi líkast og ég er eiginlega að bíða eftir að ég vakni
Fyrirliðinn Sölvi Geir Ottesen var hrærður í viðtali eftir 1-0 sigur Víkings á FH í úrslitum Mjókurbikarsins en er þetta í fyrsta sinn í 48 ár sem Víkingur landar bikarmeistaratitli í knattspyrnu.

Sjáðu markið sem tryggði Víkingum bikarinn og rauða spjaldið sem Pétur fékk
Víkingar urðu í kvöld bikarmeistarar í fyrsta sinn síðan 1971.

Umfjöllun: Víkingur - FH 1-0 | Víkingar bikarmeistarar í fyrsta sinn í 48 ár
Óttar Magnús Karlsson tryggði Víkingi sinn fyrsta bikarmeistaratitil síðan 1971.

Myndaveisla frá bikarsigri Víkinga
Nærri hálfrar aldar bið Víkings eftir bikarmeistaratitli lauk í kvöld.