Lífið

Miley fær dýrin eftir skilnaðinn

Sylvía Hall skrifar
Miley er mikill dýraunnandi og hefur lengi talað fyrir aukinni dýravernd. Hún fær dýrin eftir skilnað.
Miley er mikill dýraunnandi og hefur lengi talað fyrir aukinni dýravernd. Hún fær dýrin eftir skilnað. Vísir/Getty

Miley Cyrus og Liam Hemsworth hafa nú skipt eignum sínum og eru við það að ljúka öllum málum tengdum skilnaðinum. Áætlað er að skilnaðurinn gangi endanlega í gegn í mars á næsta ári að því er fram kemur á vef People.

Þá kemur einnig fram að Miley muni halda dýrum þeirra en saman áttu þau sjö hunda, tvo hesta, þrjá ketti og eitt svín. Dýrin bjuggu á heimili þeirra í Mailbu en það vakt mikla athygli þegar Hemsworth bjargaði þeim frá skógareldum í Kaliforníu á síðasta ári. Cyrus sagðist meðal annars aldrei hafa elskað hann meira en einmitt þá.

Hemsworth sótti um skilnað í ágúst eftir stutt hjónaband. Hjónin giftu sig þann 23. desember á síðasta ári og héldu lágstemmda athöfn á heimili sínu fyrir nánustu vini og ættingja eftir að hafa verið saman með hléum í tíu ár.

Þrátt fyrir mikið fjölmiðlafár í kringum skilnaðinn hafa þau haldið hvor í sína áttina. Cyrus hefur undanfarna mánuði verið með söngvaranum Cody Simpson á meðan Hemsworth hefur nýlega sést með fyrirsætunni Gabriellu Brooks.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×