Lýst eftir foreldrum yfirgefinna barna í Danmörku Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 15. desember 2019 16:30 Börnin fundust yfirgefin í götunni Park Allé í Árósum. Østjyllands Politi
Lögreglan á Austur-Jótlandi hafa enn ekki fundið foreldra eða aðra ættingja tveggja ungra barna sem fundust í gær í götunni Park Allé í miðborg Árósa. Lögreglan birti í dag myndir af börnunum, eins árs gamalli stelpu og tveggja og hálfs árs gömlum stráki. Frá þessu er greint á vef danska ríkisútvarpsins. Ekkert var í fórum barnanna sem gefur lögreglunni vísbendingar um hverjir foreldrar þeirra gætu verið en þau fundust í götunni á laugardagskvöld. Stúlkan er aðeins árs gömul.Østjyllands Politi Leitað var í næsta nágrenni að vísbendingum um foreldrana en ekkert fannst. Bæði börnin eru dökk á hörund og telur lögreglan líklegt að þau séu ættuð frá Austur-Evrópu. Í gærkvöldi greindi Lars Bisgaard, lögreglustjóri, frá því að strákurinn hafi talað örlítið á lögreglustöðinni en enginn hafi skilið tungumálið sem drengurinn talaði. Börnin eru talin ættuð frá Austur-Evrópu.Østjyllands Politi Lögreglan hefur í fórum sínum myndbandsupptökur úr öryggismyndavélum í götunni sem verið er að skoða og vonast hún til að foreldrar barnanna sjáist á upptökunni. Lögreglan hvetur einnig almenning til að hafa samband hafi einhver séð börnin. Þau voru tilkynnt af almenningi í gær en drengurinn stóð við hlið kerrunnar sem stúlkan lá í. Þau höfðu verið ein í nokkurn tíma. Börnin eru nú hjá barnaverndaryfirvöldum.
Danmörk Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fleiri fréttir Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Sjá meira