Viðskipti erlent

Ó­þægi­leg klósett sem ætlað er að auka af­köst starfs­fólks

Atli Ísleifsson skrifar
Þréttán gráður eru sagðar vera galdurinn.
Þréttán gráður eru sagðar vera galdurinn. StandardToilet

Breskt félag hefur lagt fram kröfu um einkaleyfi á hönnun salernis sem hugsað er fyrir vinnuveitendur þannig að auka megi afköst starfsfólks. Setan á umræddu salerni hallar þannig að fólk verji síður óþarflega löngum tíma á klósettinu á vinnutíma.

Í frétt Wired segir að setan halli um 13 gráður sem gerir það að verkum að fólk þurfi að leggja sig allt fram, ætli það sér að sitja lengur en í fimm mínútur. Hönnunin sé þannig að setan á klósettinu reyni á fæturna, án þess þó að skaða heilsuna.

„Þrettán gráður eru ekki óþægilegar, en þú vilt fara af setunni frekar fljótlega,“ segir Mahabir Gill, hugmyndasmiður og eigandi StandardToilet.

Gill segist hafa fengið hugmyndina í biðröð þar sem hann beið eftir að komast á salernið. Segist hann nú vera í viðræðum við fjölda sveitarfélaga í Bretlandi, bensínstöðvar, lestarstöðvar, skemmtistaði, verslunarmiðstöðvar og fyrirtæki.

Klósettinu er ekki einungis ætlað að vera þjóðhagslega hagkvæmt og auka afköst, heldur eigi það líka að geta stuðlað að bættri líkamsstöðu og draga úr tilfellum gyllinæðar.

Rannsóknir hafa sýnt að fólk verji sífellt lengri tíma á klósettinu, meðal annars vegna símanotkunar. Fara margir á salernið jafnvel þó að þeim sé ekki mál heldur sækja þangað til að fá smá frið.

StandardToilet áætlar að salernispásur starfsfólks kosti breskum fyrirtækjum um 700 milljarða á ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×