Formaður VR segir spennuþrungið andrúmsloft í Frakklandi Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 6. desember 2019 19:00 Ragnar Þór segir að mótmælin hafi að mestu farið sæmilega fram. Vísir/Vilhelm
Verkfallsaðgerðir vegna áforma frönsku ríkisstjórnarinnar um breytingar á eftirlaunakerfi landsins héldu áfram í dag. Almenningssamgöngur hafa verið í algjörum lamasessi, skólar lokaðir, og útlit fyrir að aðgerðri haldi áfram. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, er staddur í París og segir mikla spennu í loftinu. Að sögn Ragnars hafa margir hópar komið saman og mótmælt og það á mismunandi forsetum. Grundvallarástæðan sé fyrirhugaðar breytingar á eftirlaunakerfi Frakka sem hann segir hækka lífeyrisaldur og skerða réttindi. Einnig beinist mótmælin þó gegn ástandi loftslagsmála. Til átaka kom á milli lögreglu og mótmælenda í gær, bál voru kveikt og táragasi varpað. Ragnar segist hafa orðið var við átökin, mótmælin hafi þó almennt farið ágætlega fram. Ragnar segir lítinn hóp hafa gengið hart fram en hann hafi verið áberandi, fréttaflutningur hafi verið mestur af rúðubrotum og íkveikjum. Hann segist skynja mikla spennu en einnig góða stemningu. Almenn óánægja með Macron er svo ekki til þess fallin að lægja öldurnar. Samkvæmt síðustu skoðanakönnunum eru nærri tveir af hverjum þremur Frökkum óánægðir með störf forsetans. Hann hefur raunar ekki komið út í plús síðan í ársbyrjun 2018.
Frakkland Íslendingar erlendis Mest lesið Hryllingur í Rafah eftir hefndaraðgerðir Erlent Fluttur slasaður frá Selfossi með þyrlu Landhelgisgæslunnar Innlent Dæmi um að börn þori ekki út í frímínútur Innlent Tveir bílar skullu saman á Reykjanesbraut Innlent Fundu loks heitt vatn í Tungudal Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fólk sem ætlar að kjósa gegn Katrínu gæti lent í vandræðum Innlent Segja þrjá hafa kastast út úr rútunni Innlent Segir veginn ekki hafa gefið sig Innlent Átta á sjúkrahúsi eftir mikla ókyrrð Erlent Fleiri fréttir Hryllingur í Rafah eftir hefndaraðgerðir Átta á sjúkrahúsi eftir mikla ókyrrð 700 talin af vegna aurskriðu í Papúa Nýju-Gíneu Hamas skaut eldflaugum í átt að Tel Aviv Flytja hjálpargögn til Gasa í gegnum Kerem Shalom Tólf látin og tugir særð eftir árás á byggingavöruverslun Fjölda saknað eftir loftárás á byggingavöruverslun Halda áfram árásum á Rafah Hafnaði beiðni Baldwin um frávísun „Við munum vinna þennan slag“ Vilja banna snjallsíma fyrir yngri en 16 ára Segja Pútín vilja vopnahlé sem miðist við núverandi víglínur Sá sem át ekkert nema McDonalds í mánuð er fallinn frá Ísrael eigi að láta af öllum hernaðaraðgerðum í Rafah „Þetta setti af stað dómínó-áhrif út um allan heim“ Óttast um afdrif ríflega hundrað eftir aurskriðu Allsherjarsigur gegn Hamas ólíklegur Segir yfirlýsingar um að FBI hafi mátt skjóta Trump stórhættulegar Segir samstöðu lykilinn að jarðgangagerð Færeyinga Fjórir látnir eftir að bygging hrundi á Majorku Munu þurfa að afplána í Kósovó Skoða að leyfa árásir í Rússlandi með bandarískum vopnum Segja fiskiolíu geta aukið líkurnar á gáttatifi og heilablóðfalli Kínverjar æfa innrás á Taívan Níu létust á framboðsfundi Fjölskyldur birta myndskeið af blóðugum gíslum Hamas-liða Annar umdeildur fáni hékk við annað hús dómara Höfða mál gegn hundrað lögregluþjónum vegna árásarinnar í Uvalde Boðar til kosninga í Bretlandi í sumar Saka Rússa um að skapa ótta á Eystrasalti Sjá meira