Yfirlýsingar vitna, viðtöl við núverandi og fyrrverandi aðstoðarmenn Trump og símtöl forsetans styðja þó ekki þá vörn Trump-liða.
„Forsetanum er drullusama um Úkraínu,“ sagði Gordon Sondland, sendiherra Bandaríkjanna gagnvart Evrópusambandinu, við samstarfsmenn sína samkvæmt vitnisburði erindrekans David Holmes. Sá sagði Sondland hafa bætt við að Trump vildi eingöngu að Úkraínumenn hæfu rannsóknir á Joe Biden, fyrrverandi forseta og núverandi forsetaframbjóðanda, og Hunter Biden, syni hans.
Sondland sagðist í gær ekki muna eftir þessum tilteknu ummælum en tók fram að hann hefði enga ástæðu til að draga í efa að hann hefði sagt þetta.
Þetta á Trump að hafa sagt degi eftir umdeilt símtal Trump og Volodymr Zelensky, forseta Úkraínu, þar sem Trump bað Zelensky bæði um að rannsaka Biden.
Fjórir fyrrverandi aðstoðarmenn Trump, sem blaðamenn Washington Post ræddu við, segja ummæli Sondland, sannleikanum samkvæm. Trump sé sannfærður um að Úkraínumenn hafi reynt að „taka hann niður“, eins og einn þeirra orðaði það. Hann hefur kvartað yfir því að Úkraína hafi skemmt samband Bandaríkjanna og Rússlands, sem hafa innlimað hluta Úkraínu og styðja aðskilnaðarsinna í austurhluta landsins.

Þessi samsæriskenning á engar stoðir í raunveruleikanum. Hún er er þvert á þá niðurstöðu löggæslustofnanna og leyniþjónusta Bandaríkjanna að Rússar hafi haft afskipti af kosningunum með því markmiði að hjálpa Trump að ná kjöri.
Vitni sem koma að málefnum Úkraínu og unnu með Sondland segja Giuliani hafa kynnt Trump fyrir samsæriskenningunni og hann hafi sömuleiðis mótað slæma skoðun forsetans á Úkraínu.
Vladimir Pútín, forseti Rússlands, lýsti í gær yfir ánægju sinni með að enginn væri lengur að tala um afskipti Rússa af kosningunum 2016.
„Guði sé lof. Enginn er að saka okkur um afskipti af kosningum í Bandaríkjunum lengur. Nú eru þeir að ásaka Úkraínu,“ sagði Pútín á ráðstefnu í Moskvu í gær, samkvæmt NBC News.

Washington Post sagði líka frá því í byrjun mánaðarins að þegar Trump fundaði með embættismönnum frá Úkraínu í maí hafi hann engan áhuga haft á því að ræða við þá um spillingu né nokkuð annað en það að Úkraínumenn hafi reynt að „taka hann niður“.
Aðstoðarmenn Trump og ráðherra funduðu með Trump skömmu áður og reyndu að sannfæra hann um að Zelensky væri af öðru meiði. Hann væri mikilvægur bandamaður og hefði mikinn áhuga á því að gera koma á endurbótum í Úkraínu.
„Þetta er hræðilegt, spillt fólk,“ sagði Trump þó.
„Við skildum þetta ekki,“ sagði einn háttsettur embættismaður í Hvíta húsinu við Washington Post. Sá sagði forsetann hafa verið hugfanginn af samsæriskenningunni varðandi afskipti Úkraínu af kosningunum.
„Hann hataði Úkraínu.“
Rannsóknir sem byggja á samsæriskenningum
Forsetinn og bandamenn hans hafa sakað Joe Biden um spillingu vegna þess að hann þrýsti á úkraínsk stjórnvöld að reka saksóknara á sama tíma og Hunter, sonur hans, sat í stjórn olíufyrirtækisins. Það eigi Biden að hafa gert til að stöðva rannsókn sem beindist að Burisma, samkvæmt kenningu Trump-liða og vill forsetinn að Úkraínumenn rannsaki það.Ekkert hefur þó komið fram sem bendir til þess að Biden-feðgarnir hafi gert nokkuð ólöglega eða að rannsókn hafi yfir höfuð staðið yfir á Burisma á þeim tíma sem þáverandi varaforsetinn reyndi að koma saksóknara frá. Sú viðleitni var hluti af alþjóðlegum þrýstingi þar sem vestræn ríki töldu saksóknarann ljón í vegi þess að uppræta langvarandi spillingu í Úkraínu.
Hin rannsóknin tengist samsæriskenningu um tölvupóstþjón landsnefndar Demókrataflokksins sem rússneskir hakkarar brutust inn í fyrir forsetakosningarnar 2016 og láku vandræðalegum póstum í gegnum Wikileaks. Trump hefur lengi verið gramur vegna niðurstöðu bandarísku leyniþjónustunnar að rússnesk stjórnvöld hafi háð upplýsingastríð og framið tölvuinnbrot til að hjálpa honum til sigurs.
Trump og bandamenn hans hafa því haldið þeirri hugmynd á lofti um að það hafi í reynd verið úkraínskir útsendarar sem frömdu innbrotið í tölvupóstþjón demókrata og að þeir hafi bókstaflega falið áþreifanlegan tölvupóstþjón í Úkraínu. Markmiðið hafi verið að koma sök á Rússa. Það er, eins og áður hefur komið fram, þvert á öll sönnunargögn og niðurstöður öryggisstofnanna í bandaríkjunum og sérfræðinga.