Lífið

Stjörnulífið: Rappari verður tvítugur, fjör í Fjósinu og Lína til London

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mikið um að vera um þessa helgi eins og svo oft áður.
Mikið um að vera um þessa helgi eins og svo oft áður.
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum.

Hafrún Kristjánsdóttir, íþróttasálfræðingur og fyrrverandi línumaður í handbolta, fagnaði fertugsafmæli sínu í Fjósinu hjá Valsheimilinu á laugardagskvöldið. Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og bróðir Hafrúnar, flutti skondna ræðu, en meðal gesta voru Valskonur sem gert hafa garðinn frægan í rauða búningnum í gegnum árin. Má þarf nefna Dóru Maríu Lárusdóttur og Mist Edvardsdóttur knattspyrnukonur og Hrafnhildi Skúladóttur handboltakonu.

Þar voru jafnframt Stefán Hilmarsson söngvari, Skarphéðinn Guðmundsson sjónvarpsstjóri hjá RÚV og Þóra Helgadóttir, fyrrverandi landsliðsmarkvörður í fótbolta. Handboltakempurnar og systurnar Díana, Guðríður og Hafdís Guðjónsdóttir voru líka í góðum gír eins og útvarpsmaðurinn Logi Bergmann.

Selma Björnsdóttir kom fram í teitinu og sló rækilega í gegn með frammistöðu sinni í Fjósinu. Hafrún var um árabil einn besti línumaður landsins í handbolta. 

Hödd Vilhjálmsdóttir almannatengill og Skúli Gunnar Sigfússon, oft kenndur við Subway, skelltu sér með ferfætling í göngu og komu við í Reykjadal þar sem gott er að baða sig. 

Fjölmargir lögðu leið sína í Hörpu um helgina þar sem Bókamessa 2019 fór fram. Svo til allir rithöfundar landsins létu sjá sig auk áhugafólks um bókmenntir enda gósentíð bókanna framundan, sjálf jólin. Fyrsta í aðventu ber upp á sunnudaginn. Birgitta Haukdal mætti og las upp úr barnabók sinni fyrir börnin. 

Arnar Pétursson kynnti hlaupabók sína og svaraði spurningum frá gestum um hlaup. 

Fjölmiðlakonurnar Eva Laufey og Helga Arnar voru á meðal þeirra höfunda sem kynntu bækur sínar á Bókamessunni í Hörpu.



Kóngurinn Bubbi Morthes var sáttur á Bókamessunni í Hörpu þegar hann sá nýja bók sem er að koma út fyrir jólin. Skál og hnífur - Búbblubókin. 



Athafnarmaðurinn Nökkvi Fjallar skellti sér með Agli Ploder á Shakespeare verður ástfanginn í Þjóðleikhúsinu. 



 
 
 
View this post on Instagram
Shakespeare verður ástfanginn!

A post shared by Nökkvi Fjalar Orrason (@nokkvifjalar) on Nov 23, 2019 at 11:32am PST

Aron Can hélt upp á tvítugsafmæli sitt um helgina og var um heljarinnar veislu að ræða. Þar voru fjölmargar stjörnur landsins samankomnar. 



 
 
 
View this post on Instagram
Til hamingju með 20 árin @aroncang gaman gaman

A post shared by Aron Már Ólafsson (@aronmola) on Nov 23, 2019 at 4:56pm PST

Birgitta Líf Björnsdóttir og hundurinn hennar klæddu sig eins upp. 



 
 
 
View this post on Instagram
Matching

A post shared by Birgitta Líf Björnsdóttir (@birgittalif) on Nov 24, 2019 at 8:07am PST

Hatari kom fram á mótmælafundi á Austurvelli á laugardaginn og vakti flutningur þeirra mikla athygli. Þar voru á fimmta þúsund manns mættir og meðal þeirra voru þau Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Ragnar Aðalsteinsson, Inga Sæland, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Hataragengið, Þröstur Leó og Drífa Snædal. 



 
 
 
View this post on Instagram
Spillingardans. by @spessi_com

A post shared by HATARI (@hatari_official) on Nov 24, 2019 at 4:48am PST

Marín Manda er með fjölskyldunni á Tenerife og gista þau á einu fallegasta og besta hóteli eyjunnar, Hard Rock Hotel. 



 
 
 
View this post on Instagram
. . .

A post shared by (@marinmanda) on Nov 22, 2019 at 10:21am PST

Ólafur Arnalds var að klára sitt lengsta tónleikaferðalag hingað til. 140 tónleikar um allan heim. 



Flóni skemmti sér vel í afmæli Aron Can með félögum sínum. 



 
 
 
View this post on Instagram
A post shared by (@fridrikroberts) on Nov 24, 2019 at 11:56am PST

Lína Birgitta ætlar sér einn daginn að flytja til London. Hún hefur verið í höfuðborginni síðustu dag. 



 
 
 
View this post on Instagram
Einn daginn flyt ég hingað #london

A post shared by Lína Birgitta (@linabirgittasig) on Nov 24, 2019 at 7:44am PST

Una Sighvatsdóttir, friðargæsluliði á vegum utanríkisráðuneytisins í Georgíu, skellti sér í moskuskoðun í Abu Dhabi.



Stjörnuplötusnúðurinn Daníel Ólafsson, DJ Danni Deluxe, og Hjörvar Hermannsson eru mættir til Buenos Aires þar sem þeir verða næstunni.



 
 
 
View this post on Instagram
Touchdown Buenos Aires. Ironman lets get it.

A post shared by danielolafsson (@danielolafsson) on Nov 24, 2019 at 5:20am PST

Sunneva Einarsdóttir brosir inni í sér. 



 
 
 
View this post on Instagram
I’m smiling on the inside, I swear

A post shared by Sunneva Eir Einarsdóttir (@sunnevaeinarss) on Nov 20, 2019 at 8:42am PST









 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×