Látinn fjúka og lét greipar sópa heima hjá samstarfsmönnum Kristín Ólafsdóttir skrifar 6. nóvember 2019 11:05 Maðurinn var handtekinn á Keflavíkurflugvelli. Vísir/Jói K.
Lögreglan á Suðurnesjum handtók í vikunni mann á Keflavíkurflugvelli sem var á leið úr landi með þýfi, sem hann reyndist hafa stolið af fyrrverandi samstarfsmönnum sínum á höfuðborgarsvæðinu fyrr um daginn. Málið er rakið í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að morgunn einn í vikunni hafi lögregla verið kölluð að heimili í austurbæ vegna innbrots. Þar hafði tölvum, tækjum og öðrum verðmætum verið stolið af húsráðendum, sem eru erlendir verkamenn. Rannsóknarlögreglumaður sem fór með málið komst fljótlega að því að samstarfsmaður íbúa hefði verið rekinn úr starfi fyrr sama dag. Hann hefði enn fremur, að öllum líkindum, pantað flug úr landi um kvöldið. Í kjöflarið var haft samband við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum og óskað eftir því að maðurinn yrði stöðvaður á leið sinni í gegnum flugvöllinn. Það var gert og við nánari athugun reyndust skór hans passa við fótspor sem fannst á vettvangi. „Eftirleikurinn var auðveldur, maðurinn var handtekinn og allt þýfið úr innbrotinu fannst í farangri hans. Málið er á lokastigum rannsóknar,“ segir í tilkynningu lögreglu á höfuðborgarsvæðinu.
Keflavíkurflugvöllur Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira