Dagbók Bents: Slippbarinn breyttist í Flippbarinn Ágúst Bent skrifar 8. nóvember 2019 17:00 Bent nálgast Airwaves á sinn hátt. Hér er sagt frá því sem fyrir augu bar á fimmtudagskvöldi.
Airwaves band. Visa kort. Bleik peysa með mynd af dádýri. Rafskúta. Óseðjanlegt hungur í að hlusta á ókunnuga spila á gítar og svoleiðis. Gel. Ég er ready. Huginn er alvöru stjarna. Þessi lög myndu virka hvar sem er í heiminum. En starfsfólkið hér á Geysi, Skólavörðustíg, hlýtur að setja spurningu við 66° norður derhúfuna hans. Er það ekki eins og að vera með KR hatt á karlakvöldi Vals? Eða jafnvel að spila á árshátíð Hells Angels með UMFÍ húfu (þau eru óvinir, hef ekki tíma til að fara út í það.) „Ég vildi ekki fisk, ég vildi bara kex.“ Rapp er farið úr böndunum. Hann tekur Þú veist af mér. Vá, hvað þetta er gott lag, þetta fer á playlistann. Þessi gæi er svo frambærilegur að ég er með tvær standpínur. Það er svo gott að fara á tónleika í fatabúð. Ég skelli mér í prjónaða peysu og hlusta á Huginn taka Hetjuna í hverfinu. Prófum þennan rúllukraga. Flottur trefill. Það er best að fara í ný föt fyrir hvert lag. Ég máta meira en Magnus Carlsen. Eftir að hafa skilað fötunum og beðist afsökunar skellti ég mér á Canopy og sá Ástu. Þessi stelpa er sjúklega krúttleg. Hún er ein á sviðinu með gítar, hljóðnema og massíva einlægni. Fólkið situr á gólfinu með krosslagða fætur eins og þau séu í fermingarfræðslu og auðvitað er ruggustóllinn á sínum stað. Ásta lítur smá út eins og Bert úr Dagbók Berts og hún hálf jóðlar sveitó hipster trúbba músík. Mér líður eins og Litla Áka og fatta að Þetta er Þ-jóðl-agatónlist. Ekki berja mig. Á hæðinni fyrir neðan rekst ég á Sigga Hall. Það kemur í rauninni engu við en hann heilsaði mér með nafni og ég vildi bara leka því í fjölmiðla. Ásta bauð upp á massíva einlægni.Mummi Lú Þegar Sykur fara í gang breytist Slippbarinn í Flippbarinn. Agnes er með svo óheflaða útgeislun og hún elskar greinilega að koma fram. Frábær hljómsveit. En afhverju fékk ég bjórinn í plastglasi? Eins og manni sé ekki treystandi fyrir gleri. Það gerir mig svo reiðan að ég myndi dúndra þessu… ahhh nú skil ég. Sykur er frábær og var með Slippbarinn í vasanum.Linda Fahrmann Dehn Dillon er með fjölbreyttasta kúnnahóp á íslandi. Alvöru rónar, túristar, venjulegt fullorðið fólk, cool kids og svo hver sem rambaði inn. Ein stór, full, fjölskylda. Hér er öðruvísi fyrirkomulag en á hinum stöðunum. On venue en samt ekki og held ég eina Airwaves venue-ið sem er hægt að borga sig inná. Þarna uppi er Horrible Youth að spila og þarna eru greinilega reynsluboltar á ferð. Söngvarinn er ber að ofan, í geggjuðu formi og skaffar mér þessa þriðju standpínu sem mig vantaði áðan. Frosti Gringo lemur trommurnar eins og þær eigi það skilið og allt er svo fagmannlegt. Ég fæ samviskubit yfir því að hafa verið að sinna artistum sem eru ekki búnir að mastera sitt craft svona. Þessir gæjar eiga skilið að vera big deal. Horrible Youth eru saga til næsta bæjar. Bransafólk sem ég talaði við skildi ekki alveg afhverju Emmsjé Gauti var að spila á hátíðinni. Hann er búinn að meika það og kannski lítið sem hann getur grætt á þessu. Svo þegar ég mætti á Gamla bíó frétti ég úti í sal að hann hefði meira að segja eytt greiðslunni sinni í ljósasjó. Það sést. Þetta er victory lap. Allt annað rapp á íslandi er amatöra stöff í samanburði. Hér er alvöru fagmaður á ferð. Ég nenni ekki einu sinni að vera afbrýðisamur, þetta bara gleður mig. Takk fyrir þitt framlag Emmsjé Gauti. Emmsjé Gauti = fagmaður.Florian Trykowski Iðnó er alltaf skemmtilegur staður og þar eru Jói Pé og Króli að spila. Halli og Laddi rappsins. Króli er alvöru performer, ég sá hann í Queen söngleiknum um daginn og grunar að leið hans liggi í þá áttina. Þó að hann geti auðvitað gert það sem hann vill. Lítur samt út eins og 32 ára maður að leika 11 ára hrekkjusvín. Sem er auðvitað mitt hlutverk. Jói Pé og Króli munduðu mækana í Iðnó.Marín Mist Niðurstaða Þetta var helvíti skemmtilegt fimmtudagskvöld, hellingur af góðri músík og stemningu, en núna er kominn alvöru helgi. Airwaves band. Greiðslukort. Bólufelari. Sjálfseyðingarhvöt. Góðir sokkar. Ég er ready.
Dagbók Bents Airwaves Menning Næturlíf Tónlist Tengdar fréttir Dagbók Bents: Það sem útlendingar meina þegar þeir segjast vilja heyra íslenska tónlist Bent nálgast Airwaves á sinn hátt. Hér er sagt frá því sem fyrir augu bar á miðvikudagskvöldi. 7. nóvember 2019 14:00 Mest lesið „Jú, ég sá einhverja fræga“ Lífið „Meðan ég er ánægð skiptir álit annarra engu“ Tíska og hönnun Svona gekk Sindra Sindrasyni í bílprófinu Lífið Hugljúft en stutt gaman Gagnrýni Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Lífið Klæddist fimm kílóum af mannahárum Tíska og hönnun Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Lífið Óþekkjanleg á Óskarnum Tíska og hönnun „Takk fyrir mig Ísland, mitt draumaland“ Tónlist Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Lífið Fleiri fréttir Svona gekk Sindra Sindrasyni í bílprófinu „Jú, ég sá einhverja fræga“ Villi Netó skellti hráu eggi með skurninni upp í sig Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Komst áfram fyrst íslenskra kvenna á vængjum fjallkonunnar Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Hefur safnað sjö milljónum í minningu Jökuls Íslendingur fagnaði Óskarsverðlaunum Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“ Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Uppljómun í Kaupmannahöfn breytti lífinu Krakkatía vikunnar: Hljóð, fróð og ljóðaflóð Leitaði aftur til Stígamóta eftir að gömul sár gerðu vart við sig Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Hvernig er hægt að elska foreldrið sem hefur sært mann? „Komum okkur fyrir í Hugrekkislestinni“ Fréttatía vikunnar: Fótur, fit og Gunnar Nelson „Viljum alls ekki fá fólk hingað inn og skamma það“ Gauragangur í Menntaskólanum að Laugarvatni Kelly Clarkson segist hvorki hafa fengið sigurféð né bílinn sem henni var lofað Flughræddur Dóri DNA fékk hrós frá flugfreyju Sigríður Dögg komin í ömmuklúbbinn Andar í burtu kvíðann og drekkur te til að slá á sykurþörfina Fimmta dóttirin skírð Ozzy Gísli Marteinn rís upp í krafti sýklalyfja Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Pearl Jam á móti sjókvíaeldi á Íslandi Sjá meira
Dagbók Bents: Það sem útlendingar meina þegar þeir segjast vilja heyra íslenska tónlist Bent nálgast Airwaves á sinn hátt. Hér er sagt frá því sem fyrir augu bar á miðvikudagskvöldi. 7. nóvember 2019 14:00