Enski boltinn

Ras­h­ford: Opna alltaf að minnsta kosti einn pakka kvöldið áður | Sjáðu drauma­markið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Marcus Rashford hamrar boltanum að marki Chelsea í gær.
Marcus Rashford hamrar boltanum að marki Chelsea í gær. vísir/getty
Marcus Rashford sá til þess að Manchester United komst áfram í átta liða úrslit enska deildarbikarsins en hann skoraði bæði mörk United í 2-1 sigri á Chelsea í gær.

Síðara mark Rashford var af dýrari gerðinni en markið kom úr aukaspyrnu langt utan af velli. Rosalegt mark sem má sjá hér neðar í fréttinni.

Rashford fagnar einnig 22 ára afmæli sínu í dag og hann setur myndband af marki sínu á Twitter-síðu sína þar sem hann skrifar með:

„Ég opna alltaf að minnsta kosti einn pakka kvöldið áður,“ skrifar Englendingurinn og setur myndband af markinu með.







Man. United dróst gegn Colchester United er dregið var í átta liða úrslitin í morgun.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×