Lífið

Fannar og Valgerður eignuðust sitt annað barn

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Fannar, Vala og Eysteinn.
Fannar, Vala og Eysteinn. Makamál/Aðsend mynd
Sjónvarpsmaðurinn Fannar Sveinsson og hjúkrunarfræðingurinn Valgerður Kristjánsdóttir, betur þekkt sem Vala, hafa eignast stúlku. Fannar tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum sínum í dag. 

„Þá erum við orðin fjögur,“ skrifaði Fannar og birti með fallegar myndir af nýjasta fjölskyldumeðlimnum. Fyrir eiga þau Fannar og Vala saman soninn Eystein sem fæddist í nóvember árið 2017.

 
 
 
View this post on Instagram
Þá erum við orðin fjögur

A post shared by Fannar Sveinsson (@fannarsveins) on Oct 24, 2019 at 4:09am PDT

Allar tilfinningar fara af stað

Fannar stýrir þáttunum Framkoma sem nú eru í sýningu á Stöð 2. Í viðtali við Makamál á Vísi fyrr í þessum mánuði sagði hann frá augnablikinu þegar þau komust að því að það væri annað barn á leiðinni. Vala hafði fundið á sér að eitthvað væri að gerast en þá höfðu þau reynt í einhvern tíma.  

„Ég gjörsamlega trylltist úr gleði en á sama tíma vildi ég vera alveg viss þannig ég fór út í apótek, man að ég fór í bílalúguapótek af því mér fannst eitthvað vandræðalegt að kaupa tíu óléttupróf. Þau komu svo öll út jákvæð sem var mikil gleði.“

Sagði Fannar meðal annars að hann hafi öskurgrenjað af gleði í fæðingu frumburðar síns. 

„Meðganga og fæðing er náttúrulega það ótrúlegasta sem ég hef upplifað. Og einhvern veginn því meira sem maður veit því magnaðara er þetta allt saman. Ég get eiginlega ekki valið eitthvað eitt sem mögnuðustu upplifunina fyrir utan náttúrulega þegar barnið kemur í heiminn, þá gjörsamlega fara allar tilfinningar af stað.“

Þetta einlæga viðtal má lesa í heild sinni HÉR á Vísi. Lífið óskar þeim innilega til hamingju.


Tengdar fréttir

Setti sér markmið að fá tilnefningu en endaði með því að vinna

Þátturinn Framkoma var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöldi en þar fylgdist Fannar Sveinsson með fréttakonunni Jóhönnu Vigdísi, söngkonunni Guðrúnu Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN, og leikaranum Aroni Má Ólafssyni áður en þau komu fram í sínu starfi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×