Lífið

Tuttugu við­burðir sem hægt er að sækja um verslunar­manna­helgina

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Svipmyndir frá Mýrarboltanum, Síldarævintýrinu, Þjóðhátíð, Innipúkanum og traktorstorfærunni á Flúðum.
Svipmyndir frá Mýrarboltanum, Síldarævintýrinu, Þjóðhátíð, Innipúkanum og traktorstorfærunni á Flúðum. vísir/samsett
Verslunarmannahelgin er handan við hornið og er það stærsta ferðahelgin á Íslandi enda margt að sækja. Bæjar- og útihátíðir fara fram um allt land og eins og spár eru núna verður veður gott.

Innipúkinn

Innipúkinn er haldinn í Reykjavík og fer úti á Granda. Innipúkinn er tónlistarhátíð og meðal þeirra listamanna sem munu stíga fram eru Auður, Daði Freyr, GDRN, Svala, Vök, Friðrik Dór, Moses Hightower og fleiri.

Útipúkinn verður haldinn í fyrsta skipti í ár en hann er sá hluti hátíðarinnar sem fara mun fram utandyra úti á Granda.



Frá Mýrarboltanum þegar hann var haldinn á Ísafirði.Fréttablaðið/Thelma Elísabet Hjaltadóttir
Evrópumeistaramótið í Mýrarbolta

Mýrarboltinn fer fram í Bolungarvík um helgina en dagskráin þar er þétt. Ekki verður aðeins leikinn mýrarbolti heldur verða alls konar viðburðir á hátíðinni. Högni Egilsson mun spila á föstudaginn, það verður Improv Djamm og Bjór Jóga.

Eftir Evrópumeistaramótið sjálft verður sundlaugarpartý til að skola af sér drulluna og tónleikar að því loknu. Meðal listamanna sem koma fram eru Flóni, Anton Líni og Þórdís Petra.

Gönguhátíð í Súðavík

Gönguhátíðin í Súðavík verður haldin í fimmta skipti nú um verslunarmannahelgina. Þar verða fjölbreyttar göngur á dagskrá fyrir fólk á öllum aldri.

Á kvöldin verða margs konar viðburðir, þar á meðal brenna í sundlauginni á, grill í Raggagarði og ball á laugardagskvöld.

Neistaflug

Á bæjarhátíð Neskaupstaðar verður ekki lítið um að vera en þar verður meðal annars tjaldmarkaður, skrúðganga, strandblakmót og flugeldasýning. Hátíðin verður sett á miðvikudagskvöld þegar Leiftur úr liðinni tíð, Neskaupstaður verður sýnd í Egilsbúð.

Á föstudag verður gengið úr hverfum og á hátíðarsvæði þar sem tónleikar verða haldnir og munu Rúnar Freyr og Halli Melló, Hlynur Ben og Daði Freyr stíga á stokk. Kvöldin munu öll enda á skemmtun, Hlynur Ben heldur partý á föstudag, Papar og Matti Matt spila á balli á laugardag og Eyþór Ingi og ClubDub á sunnudag.



FRÉTTABLAÐIÐ/SAMSETT
Þjóðhátíð í Eyjum

Þjóðhátíð er ein vinsælasta útihátíðin á Íslandi enda föst í sessi en hún hefur verið haldin frá því árið 1874 en þangað mættu 400 manns. Nú má búast við því að meira en 15.000 manns mæti.

Mikil tónlistarhátíð verður alla helgina en þar munu meðal annars koma fram JóiPé og Króli, GDRN, Stjórnin, ClubDub, Á Móti Sól og svo mun Bjartmar Guðlaugsson auðvitað frumflytja þjóðhátíðarlagið.

Einnig verða fastir liðir svo sem brenna á fjósakletti, flugeldasýning og búningakeppni.

Unglingalandsmót UMFÍ

Unglingalandsmótið mun fara fram á Höfn í Hornafirði í ár en þar koma ungmenni saman til að keppa í margs konar íþróttum svo sem frjálsum íþróttum, golfi, körfubolta, dansi og fleiru. Þar verður líka fjölbreytt afþreying í boði og verða kvöldvökur öll kvöldin, þar sem alls konar tónlistarfólk mun stíga á stokk.

Þeir sem munu koma fram eru DJ Sura, rappteymið Úlfur Úlfur, Salka Sól, Daði Freyr og Bríet og munu Una Stef & the SP74 og GDRN spila á lokakvöldinu.

Síldarævintýri á Siglufirði

Fjölskylduhátíðin hefur verið haldin á hverju ári í hátt í 30 ár og mun ekki vera lát á. Þar verður hverfakeppni, götugrill, listasmiðja fyrir börn, prjónakaffi og margt fleira.

Norðanpaunk

Pönkarar safnast saman á Laugarbakka í Vestur-Húnavatnssýslu og munu 50 hljómsveitir koma þar fram. Börn eru velkomin á hátíðinni, gefið að þau séu með viðeigandi eyrnahlífar.

Meðal hljómsveita sem munu koma fram eru Nornahetta, Mass, Kælan Mikla og Korter í flog.

Sæludagar KFUK og KFUM

Hátíðin er haldin í Vatnaskógi og er vímuefnalaus valkostur um verslunarmannahelgina. Dagskrá verður frá fimmtudegi til sunnudags og munu þar fara fram alls konar viðburðir.

Þar verður hægt að fara út á vatnið í bátum, leikið verður úti, haldin verður hæfileikasýning og Páll Óskar mun spila.

Kotmót Hvítasunnukirkjunnar

Kotmótið fer fram í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð en það hefur verið haldið í 65 ár. Þetta er kristilegt fjölskyldumót sem haldið er á vegum Hvítasunnukirkjunnar. Á dagskrá verður Barnamót sem er ætlað yngsta fólkinu.

Frá bæjarhátíð Akureyrar, Ein með öllu.fréttablaðið/Andri Marinó Karlsson
Ein með öllu og Íslensku sumarleikarnir

Það verður líklega margt um manninn á Akureyri um helgina þar sem jaðaríþrótti, þrekraunir, útivist og leikir verða í brennidepli. Margs konar dagskrá verður og skemmtun en hátíðin verður sett á fimmtudag með barnaskemmtun klukkan 4.

Auk þess verður Frisbígolfmót, kirkjutröppuhlaup, hæfileikakeppni og tónleikahöld. Svala Björgvins, Flóni, ClubDub og Ingó Veðurguð.

Flúðir um versló

Þetta er fimmta skipti sem bæjar- og fjölskylduhátíðin er haldin. Þar verður meðal annars hægt að fara í PubQuiz, leiktæki, traktoratorfæru og fleira. Auk þess verða tónleikar alla helgina þar sem Hildur, Bríet og Aron Can stíga á svið á föstudag.

Á laugardag verður stórhátíðardansleikur þar sem Made in Sveitin og Hreimur halda uppi stuðinu og Stuðlabandið skemmtir á sunnudagskvöldið.

Moses Hightower á Gljúfrasteini

Hljómsveitin Moses Hightower mun halda stofutónleika á Gljúfrasteini í Mosfellsdal á sunnudag þar sem hún mun spila lágstemmdar útgáfur af lögum sínum.

Verslunarmannahelgi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Dagskrá verður hefðbundin yfir helgina í kring um dýr og leiktæki en á sunnudaginn verður blásið til tónleika og munu Karma Brigade, Blóðmör og Kristín Sesselja stíga á stokk

Frá Útihátíðinni á SPOT.aðsent
Útihátíð á SPOT

Tíunda árið í röð verður ball á laugardags- og sunnudagskvöld á skemmtistaðnum SPOT í Kópavogi. Ballið stendur yfir frá klukkan tíu til hálf fjögur bæði kvöld. Brekkusöngur verður opinn fyrir öllum.

Siggi Hlö og Greifarnir munu halda uppi fjörinu á SPOT um helgina.

Verslunarmannahelgin í Hraunborgum

Sveitamarkaður, minigolfkeppni, reiptog og sundlaugarpartý er meðal þeirra viðburða sem hægt verður að kíkja á í Hraunborgum um helgina. Þar munu hljómsveitin Swiss og Ingvar Valgeirsson halda uppi stuðinu.

Fjölskylduhátíðin í Múlakoti

Árleg fjölskylduhátíð í Múlakoti í boði AOPA á Íslandi. Hátíðin stendur yfir frá föstudegi til mánudags og verður margskonar skemmtun í boði, til dæmis krakkaleikar, flugkeppni, brenna, kvöldvaka og margt fleira.

Kjötsúpuhátíðin Hesteyri

Verslunarmannahelgin verður haldin hátíðlega í læknishúsinu á Hesteyri á laugardaginn. Þar verður borin fram kjötsúpa og boðið verður upp á kaffi og nýbakaðar pönnukökur þar á eftir. Skemmtileg dagskrá verður eftir matinn, þar verða leikir, söngur og varðeldur tendraður.

Mini Þjóðhátíð

Í fyrsta skipti verður haldin Mini Þjóðhátíð fyrir Íslendinga í Noregi. Hún verður haldin á Månefisken í hjarta Osló. Hátíðin verður haldin á föstudag en þar verður kvöldverður, brekkusöngur, ball og skemmtun mun ljúka klukkan hálf þrjú.

Gunni Óla og Hebbi úr Skímó munu halda uppi Þjóðhátíðarstemningunni í Noregi.

Nú er lag á Borg

Árleg harmonikuhátíð verður haldin á Borg í Grímsnesi um helgina. Þar munu heiðursgestirnir Ásta Soffía Þorgeirsdóttir og Kristiana Farstad Björdal halda tónleika á laugardag en þær stunda nám í Noregi og halda ball um kvöldið.

Hjólað og skíðað um verslunarmannahelgina á Arnarstapa

Það er tilvalið að fara á Arnarstapa fyrir þá sem vilja stunda útivist um verslunarmannahelgina. Þar verður hjólað og skíðað á föstudaginn og um kvöldið verður grillveisla og kvöldvaka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×