Golf

Valdís Þóra lauk keppni í 54. sæti

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Getty/Mark Runnacles
Valdís Þóra Jónsdóttir lauk keppni á taílenska meistaramótinu í golfi í nótt en mótið var spilað í Tælandi um helgina og er hluti af Evrópumótaröðinni.

Valdís Þóra lék síðasta hringinn á 75 höggum sem er þremur höggum yfir pari vallarins. Valdís lauk keppni í 54.sæti en hún var samtals á fimm höggum yfir pari um helgina.

Hún færðist upp um tvö sæti á stigalista mótaraðarinnar og er nú í 65.sæti.

Sigurvegari á mótinu var áhugakylfingurinn Atthaya Thitikul en hún lauk keppni á samtals 22 höggum undir pari og sigraði með nokkrum yfirburðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×