Golf

Tiger Woods vann fimmta græna jakkann

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Tiger Woods fagnaði sigrinum vel og innilega
Tiger Woods fagnaði sigrinum vel og innilega vísir/getty
Tiger Woods fékk sinn fimmta græna jakka í dag þegar hann fagnaði sigri á Masters risamótinu í golfi. Þetta var fimmtándi risatitill hans á ferlinum.

Fyrir lokahringinn í dag var Tiger tveimur höggum frá Francesco Molinari, sem leiddi mótið. Tiger átti góðan dag í dag, á meðan Molinari lenti í vandræðum, og var Tiger með tveggja högga forystu þegar hann átti tvær brautir eftir.

Hann endaði mótið á þrettán höggum undir pari, einu höggi á undan þeim Dustin Johnson, Brooks Koepka og Xander Schauffele sem deildu öðru til fjórða sætinu á 12 höggum undir pari.

Þetta er fyrsti sigur Tiger á Masters mótinu síðan árið 2005 og sló hann met með sigrinum, en aldrei hefur eins langt liðið á milli sigra á Masters hjá einum og sama kylfingnum.





Tiger fékk fyrsta fugl dagsins á þriðju holu en fylgdi honum eftir með skolla strax á fjórðu holu. Annar skolli kom á fimmtu holu, en Tiger fékk skolla á henni alla fjóra hringina. Á sjöundu og áttundu holu komu tveir fuglar í röð og hann endaði fyrri níu holurnar á einu höggi undir pari.

Hann byrjaði seinni níu holurnar á skolla á tíundu braut en paraði næstu tvær. Hann fékk svo þrjá fugla á fjórum holum og var kominn í tveggja högga forystu eftir fugl á 16. holu. Hann fékk par á þeirri sautjándu en lenti í vandræðum á lokaholunni. Hann rétt missti púttið fyrir parinu en átti nokkuð einfalt pútt til þess að tryggja sér sigurinn, setti það niður og kom í hús samtals á þrettán höggum undir pari í mótinu.





Sigurinn var sá fyrsti á risamóti hjá Tiger í ellefu ár, en hann var nálægt því að neyðast til þess að hætta í golfi eftir erfið bakmeiðsli. Hann fór í fjórar aðgerðir á baki á fjórum árum en kom til baka í lok árs 2017 og náði góðum árangri á síðasta ári.



Klippa: Tiger vinnur Masters 2019



Fleiri fréttir

Sjá meira


×