Pep sagður halda því fram að enska úrvalsdeildin sé að hjálpa Liverpool á móti Man. City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. mars 2019 09:30 Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City og Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool. Getty/Stu Forster
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, er sagður mjög reiður yfir leikjadagskrá Manchester City á lokasprettinum en liðið á enn möguleika á því að vinna fjórfalt á þessu tímabili. Liverpool er með tveggja stiga forystu á Manchester City á toppnum í ensku úrvalsdeildinni en City-liðið á leik inni sem er reyndar á útivelli á móti nágrönnum þeirra í Manchester United. Góður árangur Manchester City í enska bikarnum þýðir að það þarf að færa fleiri leiki hjá liðinu. Leikurinn á móti Manchester United var færður vegna leiksins við Swansea City í átta liða úrslitunum. City átti að mæta Cardiff City 6. apríl næstkomandi en nú þarf að færa þann leik því þessa helgi fer fram undanúrslitaleikur Manchester City í enska bikarnum. Leikurinn var þó ekki færður aftur eins og United leikurinn heldur fram um þrjá daga. Manchester City spilar því við Cardiff 3. apríl og mætir svo Brighton í undanúrslitum enska bikarsins aðeins 72 klukkutímum síðar. Daily Mirror hefur heimildir fyrir því að Pep Guardiola sé brjálaður á bak við tjöldin vegna þessarar tilfærslu á Cardiff leiknum og telur að enska úrvalsdeildin sé að hjálpa Liverpool á móti Man. City Það er ekki auðvelt að vera að keppa á þremur stöðum samtímis og það er ein af ástæðunum fyrir því hversu fá lið hafa náð að vinna þrennur eða þá fernuna.How Liverpool and Man City's fixture lists compare - and Reds have big advantage https://t.co/exfLo4oulPpic.twitter.com/fqYpAZYyEz — Mirror Football (@MirrorFootball) March 20, 2019Aprílmánður verður hins vegar rosalegur fyrir City því þar bætast við leikir í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar líka. Manchester City spilar því níu leiki á 30 dögum eða leik á rétt rúmlega þriggja daga fresti. Það er rosalega álag á lið þó að það búi yfir mikilli breidd eins og Manchester City. „Þetta er geðveiki, allir leikirnir sem við eigum í april. Þess vegna þurfum við á öllum að halda,“ sagði Pep Guardiola meðal annars á blaðamannafundi. Hann kom þó ekki með neinar samsæriskenningar þar en þær fá greinilega að koma fram í dagsljósið á bak við tjöldin.
Enski boltinn Mest lesið Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Norskur ólympíumedalíuhafi látinn eftir að eldingu laust í höfuð honum Sport Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Golf Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Settur í bann fyrir að hjálpa fátækum krökkum Sport Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Handbolti Vilja hefja golfmótið á morgun: „Látum þetta ekki á okkur fá“ Golf Steven Gerrard orðinn afi Enski boltinn Cecilía Rán fékk á sig fastasta skot EM til þessa Fótbolti Fleiri fréttir Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona Liverpool reynir líka við Ekitike Steven Gerrard orðinn afi Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Man. Utd vill fá úrslitaleikinn á HM kvenna í fótbolta Arsenal eflir miðjuna enn frekar Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Ók líklega á yfir 120 rétt fyrir slysið Besti ungi leikmaðurinn í Japan í fyrra kominn til Tottenham Everton búið að finna sinn Peter Crouch Amorim sagði nei og Man. United missti af 1,6 milljörðum Freyr missir lykilmann fyrir metfé Leikmenn Liverpool þurfa að mæta í vinnuna í dag Sjá meira