Erlent

„Skrýtin tilfinning að þurfa að segja barni frá svona illmennsku í heiminum“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Árásarmenn hófu skothríð í tveimur moskum í Christchurch í nótt, um klukkan 13:40 að nýsjálenskum tíma.
Árásarmenn hófu skothríð í tveimur moskum í Christchurch í nótt, um klukkan 13:40 að nýsjálenskum tíma. EPA/EFE
Íbúar í nýsjálensku borginni Christchurch, þar sem minnst 49 voru skotnir til bana í hryðjuverkaárás á tvær moskur í nótt, eru skelfingu lostnir, að sögn Íslendings sem búsettur er í borginni. Hann segir Christchurch rólega borg og að enginn hafi búist við því að svo hryllileg voðaverk yrðu framin þar.

Strax ljóst að ástandið var alvarlegt

Svavar Gísli Ragnarsson hefur verið búsettur í Christchurch síðastliðin sjö ár ásamt eiginkonu sinni og tveimur dætrum. Hann var á leið á spítala í nágrenninu með mat handa starfsfólki þegar fréttastofa náði tal af honum í morgun. Skotárásin var gerð um klukkan 13:40 að staðartíma en Svavar segist hafa fengið fyrstu fregnir af henni um tuttugu mínútum síðar.

Svavar Gísli Ragnarsson.Mynd/Aðsend
„Um tvöleytið fór ég að heyra af því að það hefði orðið skotárás hérna einhvers staðar, og ekki langt frá okkur. Svo rétt um 14:30 byrjaði ég að keyra heim úr miðborginni í úthverfið og þá sá ég að það voru lögreglubílar og sjúkrabílar alls staðar, fram og til baka. Og mér fannst svo merkilegt að sjá að þeir voru allir að keyra í mismunandi áttir,“ segir Svavar.

Þá lýsir hann því að hann hafi séð hóp þungvopnaðra lögreglumanna koma út af lögreglustöð í götunni hjá sér.

„Maður sá strax þá að það var eitthvað mikið um að vera.“

Skólar dætranna í „lockdown“

Svavar sá fljótlega fram á að komast ekki heim þar sem búið var að loka götum víða í borginni.

„Og meira að segja leiðin sem ég fer heim, það var þar sem þeir náðu fyrsta skotmanninum. Og því ástæða fyrir því að ég gat ekki farið þá leið.“

Svavar og fjölskylda hans búa í Búa í Prebbleton, smábæ rétt fyrir utan Christchurch. Hann segir að skólum dætra sinna, sem eru fimm og sjö ára, hafi verið lokað fljótlega eftir árásina og mátti enginn fara þangað inn eða út.

„[…] sem er svolítið svona sérstök tilfinning, að geta ekki sótt börnin þín. Við fórum bæði heim, ég og eiginkonan var heima, biðum aðeins þar og fréttum svo að leikskólinn væri að hleypa inn foreldrum en ef foreldrar færu inn máttu þeir ekki fara út aftur. Þannig að eiginkonan fór á leikskólann til að vera með litlu og ég beið við miðlana til að bíða eftir fréttum um að við mættum sækja skólastelpuna.“

Lögregla hefur verið með mikinn viðbúnað í Christchurch.Vísir/GEtty

Trúir því enginn að þetta hafi gerst

Hjónin komu dætrunum loks heim um sexleytið en Svavar segir að stúlkunum hafi ekki verið sagt af árásinni í skólanum. Hann hafi sjálfur stiklað á stóru um árásina við eldri dóttur sína en ekki sagt þeirri yngri neitt.

„[Það er] skrýtin tilfinning að þurfa að segja barni frá svona illmennsku í heiminum.“

Aðspurður segir Svavar að íbúar Christchurch séu slegnir yfir árásinni. Hann lýsir því að hrætt fólk hafi leitað skjóls á skyndibitastaðnum sem hann rekur í borginni, The Kiwi Viking, á meðan lögregluaðgerðir stóðu sem hæst síðdegis.

„Það eru bara allir í sjokki. Það trúir enginn að þetta gerist í þessu þjóðfélagi hér. Christschurch er alveg einstaklega róleg borg, sérstaklega eftir jarðskjálftann. Borgin er búin að taka svo ægilega langan tíma að taka við sér aftur, þannig að hún er ægilega róleg, sérstaklega á kvöldin og annað. Og náttúrulega bara skrýtið að við erum oft búin að vera þarna í Hagley park, og þetta er innan við þrjá kílómetra frá okkur á báða vegu, það sem gerðist.“


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×