Leikmaður Víkinga valinn í landslið Síerra Leóne Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. ágúst 2019 12:45 Kwame Quee. Vísir/Vilhelm
Einn leikmaður í Pepsi Max deild karla fer í langa keppnisferð til Afríku í byrjun næsta mánaðar. Kwame Quee, leikmaður Víkinga í Pepsi Max deild karla, er í leikmannahópi landsliðs Síerra Leóne fyrir leiki í undankeppni HM 2022. Víkingar hafa fengið boð frá knattspyrnusambandi Afríkuríkisins að Kwame Quee sé í hópnum að þessu sinni. Quee verður væntanlega ekki eini leikmaður Víkings sem verður upptekinn í landsliðsverkefni en búast má við því að Kári Árnason verði áfram í íslenska landsliðinu. Kwame Quee kom til Víkinga á láni frá Breiðabliki en hann er með eitt mark og eina stoðsendingu í sjö deildarleikjum með Víkingi í sumar. Kwame Quee mátti ekki spila í undanúrslitaleiknum í bikarnum á móti Breiðabliki en skoraði fyrir Blika í sigri á HK í bikarleik í lok maí. Quee verður væntanlega með Víkingum í bikarúrslitaleiknum á móti FH. Kwame Quee hefur leikið fjórtán landsleiki fyrir Síerra Leóne. Síerra Leóne mætir Líberíu i tveimur leikjum í landsleikjahléi í september, sá fyrri fer fram í Monroviu í Líberú 4. september en sá síðari í Freetown í Síerra Leóne fjórum dögum síðar. Sigurvegarinn úr þessum tveimur leikjum tryggir sér sæti í undankeppninni þar sem eru spilaðir tíu fjögurra liða riðlar þar sem ein þjóð úr hverjum riðli tryggir sig inn á HM í Katar 2022. Kwame Quee er ekki eini Víkingurinn í landsliði Síerra Leóne því Ibrahim Sorie Barrie úr Inkasso-liði Víkings úr Ólafsvík er einnig í hópnum að þessu sinni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur alltaf í Þór Íslenski boltinn Extraleikarnir: Nablinn varð náfölur og ældi endalaust eftir keppni Körfubolti „Fyrirgefðu mamma“ Enski boltinn Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Fótbolti Sjáðu Albert í essinu sínu þrátt fyrir innbrotið Fótbolti Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Enski boltinn „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Handbolti Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Enski boltinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Handbolti Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni Handbolti Fleiri fréttir Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni Sjá meira