Landsréttarhneykslið gerði Jóhannes afhuga stöðu dómara Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 27. maí 2019 13:35 Jóhannes flutti til Bretlands eftir að ráðherra skipti honum útaf lista hæfnisnefndar og skráði sig í nám í Cambridge sem hann var að ljúka.
Dómsmálaráðuneytið auglýsti laust til umsóknar embætti dómara við Landsrétt í byrjun mánaðarins. Þegar listi yfir umsækjendur var birtur vakti það athygli að Jóhannes Rúnar Jóhannsson, hæstaréttarlögmaður, er ekki á lista yfir umsækjendur en hann er sá eini í hópi hinna fjögurra umsækjenda sem gengið var fram hjá við skipun dómara við hið nýja dómsstig sem sækir ekki um starfið. Mannréttindadómstóll Evrópu, eins og frægt er orðið, komst að þeirri niðurstöðu að dómaraskipun Sigríðar Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, hefði brotið gegn 6. grein mannréttindasáttmálans sem fjallar um rétt einstaklinga til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson ákvað á dögunum að segja starfi sínu lausu og setjast í helgan stein og því losnaði staða dómara við Landsrétt. Jóhannes segir í samtali við fréttastofu þær aðstæður sem sköpuðust vegna embættisfærslu Sigríðar hafi orðið til þess að hann hafi ekki lengur áhuga á stöðu dómara við réttinn. „Ég hef ekki mikinn áhuga á henni. Mér fannst áhugavert að leitast eftir þessu embætti í upphafi þar sem um var að ræða nýjan spennandi dómstól en af því varð ekki eins og frægt er orðið og það augnablik er einfaldlega liðið.“ Þau sextán sem skipuð voru dómarar við Landsrétt sumarið 2017. Jóhannes var á lista hæfnisnefndar en ráðherra skipti honum og fjórum öðrum út.Dómsmálaráðuneytið Flutti til Bretlands og skráði sig í nám Ekki nóg með að Jóhannes hafi ekki sótt um starfið heldur hefur hann flust búferlum til Bretlands. Það gerði hann strax og honum varð ljóst að hann væri ekki á lista dómsmálaráðherra. Jóhannes segist ekki vera á heimleið í bráð. „Ég ákvað að skrá mig í nám í Cambridge korteri eftir að ég fékk þau tíðindi að ég væri ekki á lista ráðherrans, komst þar inn og var að ljúka námi í síðustu viku.“ Hann segist staðráðinn í því að vera áfram í Bretlandi allavega í eitt ár í viðbót. Sigríðar Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, sagði af sér eftir dóm Mannréttindadómstóls Evrópu.Vísir/Vilhelm Stjórnvöld ekkert aðhafst eftir dóm MDE Jóhannes er gagnrýninn á aðgerðaleysið í skugga dóms MDE. „Það er auðvitað ljóst að það hefur akkúrat ekkert verið gert til þess að leysa þennan hnút. Það er auðvitað engin lausn í sjálfu sér að leita eftir endurupptöku á þessum dómi Mannréttindadómstólsins. Það leysir auðvitað ekki vanda Landsréttar, það hugsanlega frestar því að þurfa að taka á málinu.“ Aðspurður hvort það sé ekki alvarlegt í sjálfu sér að hæft fólk sé orðið afhuga því að bjóða fram krafta sína vegna málsins segir Jóhannes svo vera. „Það er auðvitað ekki skemmtilegt en þetta er auðvitað bara farsi frá upphafi og afleiðingarnar eru náttúrulega að koma fram núna. Það er ekkert hægt að lýsa þessu öðruvísi.“ Jóhannes Rúnar sagði á sínum tíma, þegar hann stóð í málaferlum við ríkið, að háttsemi ráðherra ætti ekki að líðast.Vísir Finnur til með þeim sem voru skipaðir Jóhannes segir að málið sé í heild afar sorglegt. „Þetta er náttúrulega bara afskaplega sorgleg staða. Ég finn til með öllu þessu góða fólki og ekki síst með þeim sem fjórum sem voru skipaðir. Mér finnst þau hafa verið sett í ömurlega stöðu. Eins og margoft hefur komið fram að þá er þetta allt gott og hæft fólk sem á allt það besta skilið. Ég finn bæði til með þeim sem var gengið framhjá en líka þeim sem voru skipaðir.“ Þá sé þetta líka ömurleg staða fyrir dómsstigið sjálft og fólkið sem þurfi að leita þangað með mál sín.Hæstiréttur dæmdi íslenska ríkið til að greiða Jóhannesi Rúnari og Ástráði Haraldssyni 700 þúsund krónur í bætur vegna ólögmætrar málsmeðferðar sem þeir urðu fyrir við skipun dómara í Landsrétt. Íslenska ríkið var hins vegar sýknað af kröfu um viðurkenningu á skaðabótaskyldu þar sem Jóhannes og Ástráður lögðu hvorugur fram gögn til staðfestingar á að þeir hefðu orðið fyrir tekjutapi með því að fá ekki skipun dómara.
Alþingi Dómsmál Dómstólar Landsréttarmálið Tengdar fréttir Landsréttardómarar sækja um stöðu dómara við Landsrétt Umsækjendur um lausa stöðu við Landsrétt eru átta að tölu. 22. maí 2019 16:05 Ríkið dæmt til að greiða skaðabætur vegna skipanar dómara við Landsrétt Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða Jóni Höskuldssyni, héraðsdómara, fjórar milljónir króna í skaðabætur og 1,1 milljón króna í miskabætur vegna skipunar dómara við Landsrétt. 25. október 2018 13:47 Mest lesið Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Erlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Fleiri fréttir Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Sjá meira
Landsréttardómarar sækja um stöðu dómara við Landsrétt Umsækjendur um lausa stöðu við Landsrétt eru átta að tölu. 22. maí 2019 16:05
Ríkið dæmt til að greiða skaðabætur vegna skipanar dómara við Landsrétt Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða Jóni Höskuldssyni, héraðsdómara, fjórar milljónir króna í skaðabætur og 1,1 milljón króna í miskabætur vegna skipunar dómara við Landsrétt. 25. október 2018 13:47