Útskrifaður af sjúkrahúsi eftir að hafa fæðst 268 grömm að þyngd Atli Ísleifsson skrifar 27. febrúar 2019 12:56 Drengurinn kom í heiminn eftir 24 vikna meðgöngu móðurinnar. Keio háskólasjúkrahúsið
Drengur sem var einungis 268 grömm að þyngd þegar hann kom í heiminn hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi í Japan. Talið er að hann sé smæsti drengur sem hafi komið í heiminn og verið við góða heilsu þegar hann var sendur heim af sjúkrahúsi. Drengurinn kom í heiminn eftir móðir hans þurfti að gangast undir bráðakeisara í ágúst síðastliðinn. Var hann svo lítill að hægt var að koma honum fyrir í lófum fullorðinnar manneskju.Drengurinn vegur nú 3,2 kíló.KeioHonum hefur verið haldið á bráðadeild Keio háskólasjúkrahússins í Tókýó síðustu mánuði, en var ákveðið að útskrifa hann í síðustu viku, tveimur vikum eftir settan dag móðurinnar. Drengurinn, sem kom í heiminn eftir 24 vikna meðgöngu, er nú 3,2 kíló að þyngd og nærist eðlilega. Móðir drengsins kveðst ánægð með að hann hafi stækkað líkt og raunin varð þar sem hún hafi ekki verið sannfærð um að hann myndi lifa af. Fyrra „metið“ átti drengur sem kom í heiminn í Þýskalandi, en hann vó þá 274 grömm. Minnsta stúlkubarn sem hefur komið í heiminn og síðar verið útskrifuð við góða heilsu kom einnig í heiminn í Þýskalandi, árið 2015. Hún vó 252 grömm við fæðingu.
Japan Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira