Hermenn vörpuðu táragasi á mótmælendur Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 28. desember 2018 08:30 Lögreglumenn reyna að elta mótmælendur í Austur-Kongó í gær. Nordicphotos/AFP
Lögregluþjónar og hermenn skutu upp í loft og beittu táragasi á mótmælendur í borginni Beni í Austur-Kongó í gær. Mótmælendur höfðu þar brennt hjólbarða og ráðist að meðferðarstöðvum við ebólu til þess að tjá óánægju með landskjörstjórn (CENI). Reuters greindi frá. Kjörstjórn tilkynnti á miðvikudag um að íbúar í Beni og Butembo fengju ekki að greiða atkvæði í forseta-, þing- og sveitarstjórnarkosningum sem fram eiga að fara á sunnudaginn. Ástæðan er sú að þar geisar ebólufaraldur, sá næstversti í sögu álfunnar. Að minnsta kosti 350 hafa dáið hingað til. Þá er íbúum Yumbi einnig meinað að kjósa vegna þjóðflokkaátaka. Borgirnar eru sagðar höfuðvígi stjórnarandstöðunnar og því ólíklegar til þess að kjósa flokk Josephs Kabila forseta, PPRD, og forsetaframbjóðanda hans, Emmanuels Ramazani Shadary. Martin Fayulu, vinsæll stjórnarandstöðuframbjóðandi, hvatti í gær samlanda sína til þess að hefja allsherjarverkfall í dag. „Mér ofbýður. Kjörstjórn hefur farið út fyrir öll velsæmismörk,“ sagði Pierre Lumbi, kosningastjóri Fayulu, við blaðamenn. Kosningarnar verða þær fyrstu í 34 ár þar sem Kabila er ekki á kjörseðlinum. Hann tók við eftir að faðir hans var myrtur árið 2001. Þessar kosningar áttu að fara fram árið 2016 en hefur verið frestað ítrekað. Nú óttast stjórnarandstæðingar að PPRD reyni að stela kosningunum.
Afríka Austur-Kongó Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira