Herða reglur um þungunarrof Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. mars 2018 05:59 Baráttufólk fyrir kvenréttindum hefur gagnrýnt breytingarnar. Aðrir, sem telja að líf barn hefjist við getnað, fagna þeim. Vísir/Getty
Ríkisstjóri Mississippi samþykkti í gærkvöldi breytingar á fóstureyðingalöggjöf ríkisins sem sagðar eru þær ströngustu í gervöllum Bandaríkjunum. Gagnrýnendur breytinganna telja þær stangast á við stjórnarskrá Bandaríkjanna. Hin nýja löggjöf kveður á um bann við þungunarrofi eftir fimmtándu viku og á því eru gerðar fáar undantekningar. Konur sem verða þungaðar eftir nauðgun eða sifjaspell geta til að mynda ekki lengur farið í fóstureyðingu í Mississippi þegar meira en 15 vikur eru liðnar af meðgöngunni. Hins vegar verður áfram hægt að rjúfa þungun að þessum tíma liðnum þegar líf móðurinnar er talið vera í hættu eða þegar fóstrið er alvarlega vanskapað. Mississippi hafði áður leyft þungunarrof fram 20 viku meðgöngunnar. Ríkisstjórinn, Phil Bryant, tilkynnti í gær að með breytingunum vonaðist hann til að ríki sitt yrði „öruggasti staður í Bandaríkjunum fyrir ófædd börn.“ Baráttufólk fyrir kvenréttindum hefur kært nýju löggjöfina og segir að hún stangist á við hinn sögufræga Roe v. Wade-úrskurð frá árinu 1973, sem varð til þess að þungunarrof var löglegt í Bandaríkjunum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur barist fyrir breytingum á alríkislöggjöfinni sem kveður á um bann við þungunarrofi eftir 20 viku. Frumvarp sem hann lagði fram í janúar síðastliðnum var hins vegar stöðvað í öldungadeildinni.
Bandaríkin Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Erlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Sjálfkjörið á Vopnafirði Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fleiri fréttir Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Sjá meira