Geymir mynd af Kim Kardashian og Kanye West í biblíunni eftir að hafa endurheimt frelsið Sylvía Hall skrifar 14. júní 2018 21:11 Alice Marie Johnson ásamt dóttur sinni. Hún segir Kim Kardashian West hafa bjargað lífi sínu. Vísir/AP
Alice Marie Johnson, konan sem Donald Trump mildaði lífstíðarfangelsisdóm yfir nú á dögunum, er laus úr fangelsi og segist þakka Kim Kardashian West fyrir frelsi sitt og að hún hafi bjargað lífi sínu. Raunveruleikastjarnan fundaði með forsetanum í maí síðastliðnum þar sem hún fór fram á að mál Johnson yrði tekið fyrir. Johnson, sem er 62 ára gömul, hlaut árið 1996 lífstíðarfangelsisdóm fyrir ofbeldislausan fíkniefnaglæp og er ein tveggja kvenna sem Kim Kardashian West hefur talað fyrir að fái frelsi sitt á ný. Hin konan er Cyntoia Brown, en hún situr inni fyrir morð sem hún framdi árið 2004, þá sextán ára gömul. Því hefur verið haldið fram að hún hafi verið fórnarlamb mansals, og morðið hafi verið í sjálfsvarnarskyni.Sjá einnig: Kim Kardashian og Trump ræða fangelsismál Í viðtali við CNN segir Johnson að hún hafi ekki vitað hver Kardashian West væri þegar stjarnan fór að tala máli hennar á opinberum vettvangi. Hún hafi lesið öll blöð og viðtöl við hana í kjölfarið og segist vera henni ævinlega þakklát fyrir frelsið, en Johnson sat inni í 22 ár og átti ekki möguleika á reynslulausn. Kardashian West setti sig í samband við Ivönku Trump, dóttur forsetans, fyrir nokkrum mánuðum síðan sem kom málinu áleiðis til eiginmanns síns og ráðgjafa forsetans, Jared Kushner. Hann hafi síðan komið málinu á borð forsetans sem leiddi til fundar forsetans við Kim Kardashian West. Þær Johnson og Kardashian West hittust eftir að þeirri fyrrnefndu var sleppt úr fangelsi. Í viðtali við NBC sagði Johnson að hún myndi hafa Kardashian West og eiginmann hennar, Kanye West, í bænum sínum og sagði að hún geymdi mynd af hjónunum í biblíunni sinni.
Tengdar fréttir Losnar úr fangelsi eftir að Kim Kardashian talaði máli hennar við Trump Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur mildað lífstíðarfangelsisdóm yfir Alice Marie Johnson og mun hún losna úr fangelsi fljótlega. 6. júní 2018 18:06 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira
Losnar úr fangelsi eftir að Kim Kardashian talaði máli hennar við Trump Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur mildað lífstíðarfangelsisdóm yfir Alice Marie Johnson og mun hún losna úr fangelsi fljótlega. 6. júní 2018 18:06