Viðskiptavinir hafa forgang á bílastæði við Smáralind Andri Eysteinsson skrifar 9. desember 2018 20:45 Bílastæði við Smáralindina eru um 3000 talsins. Viðskiptavinir eru í forgangi um þau fyrir Jól. Vísir/Vilhelm
Starfsfólki Smáralindarinnar hefur verið gert að leggja bílum sínum á sérstöku starfsmannabílastæði fyrir jólin. Bílastæðið er ómalbikað og er í um 100 metra fjarlægð frá húsinu. Framkvæmdastjóri Smáralindarinnar, Sturla Gunnar Eðvarðsson, segir í samtali við Vísi að fyrirkomulagið hafa verið lýði við hver jól frá opnun Smáralindarinnar árið 2001. Í mynd við færslu sem birtist á Twitter fyrir helgi sést að starfsfólki hefur verið sagt að leggja bílum sínum á lóð í eigu Smáralindarinnar nærri framkvæmdunum við nýja hverfið 201 Smári. Á myndinni stendur einnig að starfsmenn megi eiga von á því að bílar þeirra verði dregnir burt á þeirra eigin kostnað verði þeir á bílastæðum sem ætluð eru viðskiptavinum.Hérna er smáralind að ætlast til þess að ég (og aðrir starfsmenn smáralindar) leggi á ómalbikuðu stæða plássi rúmum kílómeter frá smáralindinni á hverjum degi í Des pic.twitter.com/hDVKmskZko — Hávær Hóra (@thvengur) December 7, 2018Viðskiptavinir ganga fyrir „Við látum okkar viðskiptavini ganga fyrir um bestu bílastæðin þegar mest er aðsókn í húsið“ segir Sturla Gunnar Eðvarðson í samtali við Vísi. Aðspurður hvort beri á óánægju meðal starfsfólks segir Sturla að slíkt fylgi því þegar fólk er beðið um að leggja lengra frá. „Það eru náttúrulega hundruðir manna sem vinna í Smáralind og það er alltaf einn og einn sem er ósáttur,“segir Sturla. Sturla segist þó sjálfur ekki hafa orðið var við óánægju. Bílastæði í kringum Smáralindina eru í kringum 3.000 talsins og síðustu dagana fyrir jól eru gestir Smáralindarinnar allt að 40.000 á hverjum degi, því þarf að stýra umferðinni um bílastæðin þegar mikið er að gera, segir Sturla.Um einkalóð að ræða Spurður að því hvort Smáralindin hafi heimild til þess að banna starfsfólki að leggja á bílastæðunum segir Sturla að Smáralindin sé með fullan umráðarétt yfir bílastæðunum. Sturla segir enn fremur að í gegnum tíðina hafi fólk lagt ýmsum ökutækjum og fellihýsum á bílastæði Smáralindarinnar sem hafi heimild til að láta draga bílana í burt þar sem að um einkalóð er að ræða. Smáralindin hafi hins vegar ekki heimild til þess að sekta eigendur.
Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Innlent Fleiri fréttir Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Sjá meira