Sigrar hjá Íslendingaliðunum sem verja toppsætin í Þýskalandi og Svíþjóð Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 8. mars 2018 19:34 Alexander Petersson vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen vann sinn annan stórsigur á þremur dögum þegar liðið fékk Göppingen í heimsókn í þýsku Bundesligunni í handbolta. Ljónin tryggðu sér í undanúrslit þýsku bikarkeppninnar á þriðjudaginn með stórsigri á Leipzig. Göppingen spilaði einnig bikarleik á þriðjudag svo liðin fengu jafn litla hvíld á milli leikja. Heimamenn í Rhein-Neckar settu tóninn strax í upphafi og voru komnir í 4-1 eftir fimm mínútur. Munurinn var kominn upp í sex mörk þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður. Hálfleikstölur voru 15-11. Rhein-Neckar byrjaði seinni hálfleikinn á 4-0 kafla og komu stöðunni í 19-11. Eftir það var ekki aftur snúið, sigurinn vís. Svo fór að heimamenn sigruðu með 11 mörkum, 31-20. Alexander Petersson skoraði þrjú mörk fyrir Rhein-Neckar en Guðjón Valur Sigurðsson komst ekki á blað. Ljónin eru á toppi deildarinnar með tveggja stiga forystu á Füchse Berlin og mun betri markatölu. Íslendingalið Kristianstad styrkti enn stöðu sína á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta með sigri á Lugi. Ólafur Guðmundsson skoraði 3 mörk, Arnar Freyr Arnasson 1 og Gunnar Steinn Jónsson 2 í 28-25 sigri Kristianstad. Liðið er nú með átta stiga forystu á Malmö á toppi deildarinnar.
Handbolti Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Breiðablik - Afturelding | Hvort liðið endar sem bikarmeistari? Íslenski boltinn ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Fleiri fréttir Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Eyjakonur unnu opnunarleikinn Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun Sjá meira