Verktaki Vaðaleiðarganga, Ósafl, hefur gert „háar fjárkröfur“ á verktakann, Vaðlaheiðargöng, vegna þess hversu verklok hafa dregist. Því kann fjármögnun ganganna að koma til kasta Alþingis í þriðja sinn á næsta þingi, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins.
Vélar og tæki á vegum Ósafls, sem er dótturfélag ÍAV, hafi staðið einu og hálfu ári lengur við göngin en samið var um upphaflega. Meðan þau standa óhreyfð hafa þau eðli málsins samkvæmt ekki geta nýst í önnur verkefni - með tilheyrandi tapi fyrir verktakann. Forsvarsmenn Ósafls segja í samtali við Morgunblaðið í dag að tafirnar hafi kostað fyrirtækið milljarða. Um sé að ræða bæði beinan sem og óbeinan kostnað.
Sjá einnig: Segir reynt að torvelda aðgang að upplýsingum
Sérstök sáttanefnd hefur kveðið upp úrskurð um ágreininginn. Deiluaðilarnir þurfi að nú ákveða hvort þeir uni við úrskurðinn eða fari með málið fyrir dómstóla.
Upphaflega stóð til að opna Vaðlaheiðargöng á síðari hluta ársins 2016 og var kostnaðurinn metinn um 9 milljarðar króna. Greint var frá því í apríl í fyrra að framkvæmdin væri þegar komin 44 prósent fram úr áætlun. Tafirnar og kostnaðaraukningin eru ekki síst raktar til stórrar heitavatnsæðar sem uppgötvaðist við framkvæmdirnar.
