Nýársspá Siggu Kling - Nautið: Óvenjulétt að viðurkenna að þú hafir ekki haft rétt fyrir þér 5. janúar 2018 09:00
Elsku Nautið mitt, þú ert týpa sem elskar að lifa og hrærast í að passa upp á fjölskylduna og einfaldleikann. Í eðli þínu, eins og þú ert nú merkilegt, þá leyfir þú þér ekki rosalega tilbreytingu í lífi þínu. Þú ert svo pottþétt manneskja en getur akkúrat látið það rústa parti af tilveru þinni. Þú elskar að vera ástfangið, jú, því þú ert fjölskyldumanneskja, en getur orðið svo óhamingjusamt því að þú þarfnast mikillar rómantíkur og elskar að vera kynæsandi. Árið 2018 gefur þér mjög merkilega hluti fram á sumarið, það er eins og þú hafir sent líf þitt til endurskoðanda og hann sé að reikna út hvort þú sért í réttum farvegi. Á þessum tíma og næstu mánuði áttu ekki að bíða eftir einhverjum tengdum ástinni. Alveg sama þótt þú sért í sambandi með þeirri manneskju, þú átt ekki að bíða og bíða eftir að eitthvað breytist svo þú verðir hamingjusamt vegna orða eða gjörða elskhuga þíns eða maka. Þetta er hið andlega ár og í talnafræðum er talan sjö ríkjandi. Hún lætur þig leita meira inn á við og það er margt sem þú ert ekki ánægt með. Hún veldur miklum sveiflum í geði eða hugsun akkúrat bara til þess að leiða þig að rétta punktinum. Það er svo mikilvægt á næstu mánuðum að fá lánaða dómgreind, fara til sálfræðings (sem allir ættu reyndar að gera), og finna hvernig þú vinnur úr hlutunum á hárréttan máta. Þetta er svo sannarlega tími sem eflir þig því þú munt átta þig á hverjir eru þínir réttu draumar eða hvort hugsun þín sé bara byggð á von og trú um að eitthvað muni breytast. Þetta er mjög gott ár vegna þess að þú ert svo andlega sinnað, þú munt fyrirgefa flest allt í kringum þig þegar líða tekur á og með því færðu frelsi til þess að skilja á milli þess sem er virkilega satt og rétt og þess sem er bara tálsýn. Allt í sambandi við vinnu, verkefni og veraldleg gæði mun ganga betur upp en þú hélst. Þú átt eftir að nota kraft þinn og innri styrk til að fara heilshugar inn í þann tíma, þetta ár er svo sannarlega bara undirbúningur fyrir 2019. Alveg eins og í byrjun ástarsambands er maður ekki alveg viss um hvað sé rétt eða rangt eða hvort það muni duga en þú munt sjá að þú ert í því ferli sem mun styrkja þig og efla og láta ný tækifæri blessast. Það er mjög mikilvægt fyrir þig, elskan mín, að spá svolítið í útlitið. Þér líður svo sannarlega betur á þessu ári ef þú horfir á sjálft þig sem lítið fyrirtæki sem þarf að vera rétt stílíserað og svolítið spennandi og þá er ég sérstaklega að meina til að þér líði vel. Þú hefur svo seiðandi orku og ert göldrum gætt og þegar líða tekur á þetta ár muntu vita allan sannleikann um það sem þú hefur verið efins um. Þér á eftir að finnast óvenjulétt að viðurkenna að þú hafir ekki haft rétt fyrir þér. Það býr einhver einlægni og tær orka yfir þessu ári og þú lærir að fella allar grímur, þannig er enginn eins spennandi.Fræg Naut: Aron Einar Gunnarsson fyrirliði íslenska knattspyrnulandsliðsins, Hannes Þór Halldórsson markvörður, Ari Freyr Skúlason landsliðsmaður, Svali Kaldalóns fjölmiðlamógúll, Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, rithöfundur og latikokkur, Ellý Ármanns fjölmiðlakona, Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri, Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður, Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Álfheiður Ingadóttir þingkona, Halldór Laxness, rithöfundur og skáld, Rúnar Freyr Gíslason leikari, Garðar Thor Cortes söngvari, Helga Möller söngkona, Katrín Tanja Davíðsdóttir crossfit-meistari, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngkona, Pétur Jóhann Sigfússon, Addi Exos dj-snillingur, Davíð Rúnar Bjarnason, boxari. Setningin er: Gerðu það sem þú vilt – Vertu þú sjálfur (SSSól).
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Fleiri fréttir RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira