Henti sér út af vellinum til að sleppa við tvær mínútur en VAR tekinn | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. desember 2018 23:30 Kristian Bonefeld skömmustulegur. vísir/skjáskot
Með fyndnari atvikum handboltasögunnar átti sér stað í danska bikarnum í vikunni þegar að Kristian Bonefeld, leikmaður Skandeborg, gerði eins heiðarlega tilraun og hægt er til að komast hjá því að fá tveggja mínútna brottrekstur í bikarleik á móti Nordsjælland. Skandeborg var manni færri en Bonefeld gleymdi sér aðeins og stökk í vörnina þegar að enn þá voru um 40 sekúndur eftir af refsitímanum. Það er bannað og viðurlögin við brotinu annar tveggja mínútna brottrekstur. Bonefeld var fyrstur til að átta sig á mistökunum en hvorki dómararnir né ritaraborðið föttuðu að Skandeborgarmenn voru sex í vörn en áttu að vera fimm. Leikmaðurinn fékk þá frábæru hugmynd að hlaupa út að hliðarlínu í miðri sókn Nordsjælland og kasta sér út af. Danski handboltaheimurinn er búinn að liggja í kasti yfir þessum tilburðum Bonefeld en dómurunum brá svo mikið að þeir skoðuðu atvikið með myndbandstækni og skelltu tveggja mínútna brottrekstri á Bonefeld í kjölfarið. Sem betur fyrir fyrir leikmanninn hafði þetta ekki áhrif á úrslit leiksins því Skandeborg tryggði sér sæti í Final Four með sigurmarki þegar að þrjár sekúndur voru eftir af leiknum.Atvikið skondna má sjá með því að smella hér.
Handbolti Mest lesið Bað kærastann sinn afsökunar Sport Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Fótbolti Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Enski boltinn Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Enski boltinn Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Fótbolti Lehmann færir sig um set á Ítalíu Fótbolti Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum Fótbolti Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Handbolti Gunnlaugur Árni komst áfram á U.S. Amateur Golf Enrique staðfestir að Donnarumma sé á förum frá PSG Fótbolti Fleiri fréttir Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Slóvenskt undrabarn skoraði 23 mörk gegn Noregi Tap setur Ísland í erfiða stöðu Stelpurnar unnu Noreg á EM og tryggðu sér sautjánda sætið Strákarnir unnu Brassa og fóru áfram með fullt hús Leika um 17. sætið á EM eftir sigur á Austurríki Ágúst Elí leysir af Landin hjá besta liði landsins Leðurblökur að trufla handboltafélag Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Íslensku strákarnir byrjuðu HM á 22 marka sigri Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Gull og brons á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar Annað risastórt kvennahandboltafélag gjaldþrota Strákarnir brunuðu í úrslitaleikinn Tjörvi Týr færir sig um set í Þýskalandi Ákvað að fara þegar faðir hans var rekinn Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið Stelpurnar réðu ekki við þær serbnesku Erlangen staðfestir komu Andra Grétar kveður Frakkland og fer til Grikklands Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna Sjá meira