Rannsakandi segir mynstrið kýrskýrt dæmi um skipulagða brotastarfsemi Birgir Olgeirsson skrifar 7. desember 2018 11:10 Sex af sjö sakborninum í málinu huldu andlit sitt þegar aðalmeðferð í málinu hófst á mánudaginn. FBL/Ernir
Starfsmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sagði símanotkun ákærðu í Bitcoin-málinu gefa vísbendingar um að innbrotin í gagnaverunum hafi verið nokkuð skipulögð. Dró hann þá ályktun út frá gögnum frá símum sakborninga sem hann rannsakaði. Slökkt hafi verið á öllum símunum á svipuðum tíma, um það leyti sem brotist var inn í gagnaverin. Þá voru allir símarnir á ferð á sama tíma. Aðalnúmerið hafi verið tekið úr notkun fyrir innbrotin. Hann segir mynstrið í símagögnunum blasa við og vera kýrskýrt dæmi um skipulagða brotastarfsemi. „Það var nokkuð langt gengið í því að reyna að hylja slóð,“ sagði Snorri Örn Árnason hjá rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Snorri sagðist ekki hafa séð þess merki í sinni rannsókn að erlendir aðilar hefðu staðið að baki skipulagningunni. Fram hefur komið í máli sakborninga að erlendir aðilar stæðu mögulega að skipulagningu innbrotanna.Þorgils Þorgilsson lögmaður ásamt Sindra Þór Stefánssyni.FBL/ERNIRSegjast hræddir Sindri Þór Stefánsson, einn sjö ákærðu í málinu, hefur sagst hafa fylgt skipunum þegar hann braust inn í gagnaver í Borgarnesi og gagnaver Advania í Reykjanesbæ. Sindri Þór neitar að hafa skipulagt, undirbúið eða lagt á ráðin um innbrotin. Matthías Jón Karlsson hefur einnig játað að hafa farið inn í Advania-gagnaverið en neitar sömuleiðis að hafa skipulagt, lagt á ráðin eða undirbúið það. Báðir sögðust þeir hræddir við að gefa upp hlut annarra í málinu. Sindri sagðist óttast um öryggi sitt og fjölskyldu sinnar og Matthías sagðist einnig óttast menn vegna málsins. Báðir sögðu þeir að mennirnir sem þeir væru hræddir við væru ekki í dómsal, með öðrum orðum að þeir væru ekki hinir sem væru ákærðir í málinu. Við aðalmeðferðina spurði Þorgils Þorgilsson, verjandi Sindra Þórs, rannsóknarlögreglumanninn hvort hægt væri að leyna samskiptum við erlenda aðila. Svaraði Snorri því játandi. Fram hefur komið við aðalmeðferðina að ákærðu hafi notast við „burner“-síma, dulkóðuð forrit, telegram, Facebook-messenger og Snapchat í aðdraganda innbrotanna. Verjandi Péturs Stanislav Karlssonar sagði rannsókn lögreglu hafa komist að þeirri niðurstöðu að Pétur hefði notast við Burner-síma. Hann spurði Snorra hvernig komist var að þeirri niðurstöðu. Snorri sagði að númerið sem tilheyrði Burner-símanum hefði komið frá Sindra. Þeir Matthías Jón og Pétur Stanislav voru saman á ferð og eftir það voru þrjú Burner-númer í umferð. Byggði lögreglan það á ályktunum og líkum að Pétur hefði verið með Burner-símann en ekki beinum sönnunum.Byggingin í Borgarnesi sem hýsti gagnaverið þar.FBL/ERNIRRannsóknin náði til Spánar Jón Halldór Sigurðsson sem stýrði rannsókn lögreglunnar í málinu mætti fyrir dóm í dag. Þar var hann spurður út í tengsl málsins við alþjóðlega skipulagða brotastarfsemi. Jón Halldór sagði að nokkrir erlendir aðilar hefðu komið upp við rannsókn málsins, þar á meðal erlendur aðili sem mætti fyrir dóm sem vitni vegna blárrar sendiferðarbifreiðar sem var notuð við innbrot í Borgarnesi. Þá náði rannsóknin einnig til Spánar, þar sem ákærðu Hafþór Logi Hlynsson og Sindri Þór hafa búsetu og hafa fjárfest í húsum, og þá var gerð húsleit hjá rússnesku gagnaveri í Vestmannaeyjum. Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að rússneska fyrirtækið hafði ekkert með málið að gera. Gert er ráð fyrir að aðalmeðferð í málinu ljúki í dag með málfutningi saksóknara og verjendanna sjö.
Umfangsmikill þjófnaður úr gagnaverum Tengdar fréttir Skildi ekki hvers vegna Sindri var að segja honum frá upplýsingaþjófnaði í ótal skilaboðum Aðalmeðferð hófst í Bitcoin-málinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 3. desember 2018 13:45 Sindri Þór segist hræddur: „Ég segi ekki nei við hann“ Þetta var mitt hlutverk, að sjá fyrir heimilinu, að sjá um peninga, og ég var að klúðra því, sagði Sindri Þór Stefánsson. 3. desember 2018 15:09 Steinsofandi á sófanum meðan þjófar létu greipar sópa í gagnaverinu Öryggisvörður segist hafa farið af vakt í gagnaveri Advania og heim til sín á klósettið vegna magaverks. Þar hafi hann sofnað. Sömu nótt var glænýjum tölvubúnaði stolið úr gagnaveri Advania. 6. desember 2018 09:00 Viðurkennir nú að hafa brotist inn í gagnaverið í Borgarnesi Sindri Þór Stefánsson, einn ákærðu í svokölluðu Bitcoin-máli, óskaði eftir því að breyta afstöðu sinni til ákærunnar þegar aðalmeðferð í málinu hófst í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 3. desember 2018 09:28 Reyfarakennd aðalmeðferð í einu stærsta þjófnaðarmáli Íslandssögunnar Sakborningar hræddir við menn sem voru ekki í dómsalnum og vildu ekki gefa upp hlut annarra í málinu, nema öryggisvarðarins sem er sakaður um að aðstoða þá. 5. desember 2018 13:15 Mest lesið Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Innlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent Brestir í MAGA-múrnum Erlent Fleiri fréttir Theodóra ætlar ekki fram aftur fyrir Viðreisn „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Lesstofu Borgarskjalasafnsins lokað Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Það hafi víst verið haft samráð við sjávarútveginn Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir „Við vitum að áföllin munu koma“ Alexandra sækist eftir oddvitasætinu Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Sjá meira
Skildi ekki hvers vegna Sindri var að segja honum frá upplýsingaþjófnaði í ótal skilaboðum Aðalmeðferð hófst í Bitcoin-málinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 3. desember 2018 13:45
Sindri Þór segist hræddur: „Ég segi ekki nei við hann“ Þetta var mitt hlutverk, að sjá fyrir heimilinu, að sjá um peninga, og ég var að klúðra því, sagði Sindri Þór Stefánsson. 3. desember 2018 15:09
Steinsofandi á sófanum meðan þjófar létu greipar sópa í gagnaverinu Öryggisvörður segist hafa farið af vakt í gagnaveri Advania og heim til sín á klósettið vegna magaverks. Þar hafi hann sofnað. Sömu nótt var glænýjum tölvubúnaði stolið úr gagnaveri Advania. 6. desember 2018 09:00
Viðurkennir nú að hafa brotist inn í gagnaverið í Borgarnesi Sindri Þór Stefánsson, einn ákærðu í svokölluðu Bitcoin-máli, óskaði eftir því að breyta afstöðu sinni til ákærunnar þegar aðalmeðferð í málinu hófst í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 3. desember 2018 09:28
Reyfarakennd aðalmeðferð í einu stærsta þjófnaðarmáli Íslandssögunnar Sakborningar hræddir við menn sem voru ekki í dómsalnum og vildu ekki gefa upp hlut annarra í málinu, nema öryggisvarðarins sem er sakaður um að aðstoða þá. 5. desember 2018 13:15