Lífið

Auglýsing Geysis óvart með hljóði

Stefán Árni Pálsson skrifar
Óheppileg mistök.
Óheppileg mistök.
„Þegar þú gleymir svo að taka hljóðið af,“ segir Anna Fríða Gísladóttir, markaðstjóri Dominos á Íslandi, í tísti sem hún birti í gær.

Það birtir hún upptöku af Instagram auglýsingu Geysis Heima frá því um helgina. Þar virðist starfsmaður Geysis hafa gert ákveðin mistök og ætlaði starfsmaðurinn greinilega að birta hljóðlaust myndband eins og heyrist greinilega á upptökunni.

„Ég tek bara hljóðið af og get bara sagt prump og rugl,“ segir starfsmaðurinn og þá bætir annar aðili við: „Hægðir.... hahaha.“

Hér að neðan má sjá myndband af upptökunni, en í umræðu við færslu Önnu kemur fram að upptökunni var skipt út fyrir hljóðlausa útgáfu skömmu eftir að hún var birt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×