Segja meirihlutann hafa fengist til að viðurkenna húsnæðisvanda Birgir Olgeirsson skrifar 1. ágúst 2018 11:28 Oddviti Sjálfstæðisflokks, Eyþór Arnalds, hér meðal kollega sinna í minnihlutanum. Vísir
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa yfir vonbrigðum með að fundur borgarráði í gær bar ekki þann árangur sem vonir stóðu til um. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum vegna fundar borgarráðs. Vilja borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins meina að ummæli formanns velferðarráðs Reykjavíkur, Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, í morgunþætti Rásar tvö hafi ekki gefið góð fyrirheit fyrir fundinn. Segja borgarfulltrúarnir Heiðu Björg hafa lýst yfir skilningsleysi á málefnum heimilislausra og talið að fundurinn myndi ekki skila neinu. „Hins vegar var það áhugavert að meirihlutinn í borgarstjórn fékkst líklega í fyrsta skipti til að viðurkenna að það er brýnn húsnæðisvandi í Reykjavík,“ segir í tilkynningu Sjálfstæðisflokksins.Annað hvort vísað annað, fresta eða fellt Þar segir að flestum tillögum stjórnarandstöðuflokkanna á fundi borgarráðs í gær hafi annað hvort verið vísað annað, frestað eða felldar. Tillögurnar sneru hvoru tveggja að því að leysa bráðavanda húsnæðislausra og leysa vandann til framtíðar. Að sögn Eyþórs Arnalds mun stjórnarandstaðan fylgja tillögum sínum fast eftir á haustmánuð. Aðeins tvær tillögur af ellefu, sem lagðar voru fram, af stjórnarandstöðunni voru samþykktar. Önnur tillagan kveður á um að komið verði á færanlegu húsnæði fyrir neyðarúrræði og hin tillagan snýr að því að greina væntingar og þarfir einstaklinga sem eru í húsnæðisvanda í borginni. „Það er afar brýnt að við bregðumst við vandanum strax og komum upp færanlegu húsnæði hið fyrsta, s.s. smáhýsum fyrir ólíka hópa húsnæðislausra til bregðast við neyð heimilislausra á meðan verið er að finna varanlegar lausnir, hvort heldur sem það eru einstaklingar eða fjölskyldur,“ er haft eftir Eyþóri Arnalds í tilkynningunni. Er meirihlutinn í borgarstjórn sagður ætla að varpa ábyrgðinni af aðgerðarleysi borgarinnar síðustu árin áfram yfir á ríkið og önnur sveitarfélög en Sjálfstæðisflokkurinn segir tillögur þeirra í borgarráði hafa borið það með sér.Vilja að borgin axli ábyrgð Að mati borgráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins er kominn tími til að borgin axli sjálf ábyrgð á hlutverki sínu í húsnæðismálum fremur en að benda á aðra eins og fram kemur í bókunum stjórnarandstöðuflokkanna í fundargerð. Að sögn Eyþórs Laxdal Arnalds þarf að taka bæði á bráðavandanum og langtímalausnum en það felur meðal annars í sér að byggt verði á hagkvæmum svæðum. „Lausnin til framtíðar er nægt framboð lóða á hagstæðum svæðum Í Reykjavík. Það tel ég vera lykilatriði í átt að lausn þannig að fólk geti komið sér þaki yfir höfuðið. Þetta er einn liður í því að lækka húsnæðiskostnað,“ segir Eyþór.Vilja lækkun gjalda Þá segir hann að lækkun byggingarréttargjaldsins sé annar stór liður í að ná niður húsnæðiskostnaði. „Við bendum á að byggingarréttargjald sé stór hluti vandans, en það er 45.000 kr. á fermetra á leigufélög eins og Bjarg eða 4,5 milljónir á 100 fermetra íbúð. Það þýðir meira en 200 þúsund króna hærri leigu árlega. Við viljum lægri gjöld yfir línuna,“ segir hann. Sjálfstæðisflokkurinn lagði mikla áherslu á að gripið yrði strax til neyðarráðstafana vegna vanda húsnæðislausra. Í því sambandi nefnir flokkurinn tillögur eins og að komið yrði upp neyðarskýli í Örfirisey sem Hjálpræðisherinn rak og eru ekki lengur til staðar en þeirri tillögu var vísað til velferðarráðs til meðferðar. Þá lagði Sjálfstæðisflokkurinn jafnframt áherslu á lækkun langtímaleigu á tjaldsvæði í Laugardal en sú tillaga var felld ásamt þeirri tillögu að segja upp samningi við rekstraraðila tjaldsvæðisins.
Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Fyrsti stríðsþristurinn lentur Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Fleiri fréttir Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Sjá meira
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent