Lífið

Allt að gerast hjá Ævari vísindamanni

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Ævar á von á sínu fyrsta barni á næstu dögum og á leiðinni eru fleiri nýjar bækur auk leikrits.
Ævar á von á sínu fyrsta barni á næstu dögum og á leiðinni eru fleiri nýjar bækur auk leikrits. Fréttablaðið/Stefán
„Viðtökurnar síðustu ár hafa verið framar öllum vonum og það gengur vel, sem hvetur mann til að halda áfram að skrifa,“ segir Ævar Þór Benediktsson þegar blaðamaður hrósar honum fyrir velgengnina en bókin hans Ofurhetjuvíddin, sem kom út í maí, rauk upp á topp Bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda fyrir síðasta mánuð og sló þar með höfundum eins og Lee Child og Jordan Peterson ref fyrir rass. Vel gert það. Ævar viðurkennir að hann sé mjög lélegur að monta sig en er þó að vonum ánægður með árangurinn. Ofurhetjuvíddin var hluti af lestrar­átaki Ævars vísindamanns sem Ævar hélt fyrri hluta árs og í henni urðu fimm krakkar sem tóku þátt karakterar í sögunni.

Ævar ætlar meðal annars að fagna þessum áfanga með því að gefa út enn fleiri bækur – hann gefur í miðjan ágúst út tvær nýjar bækur í Þín eigin-seríunni, en nú þegar eru komnar út fjórar bækur í þeim bálki, og þetta verða fimmta og sjötta bókin þar og tólfta og þrettánda bókin í heild sem Ævar hefur skrifað. Þessar bækur verða þó með öðru sniði en hinar bækur Þín eigin-seríunnar því að þessar nýju bækur verða léttlestrarbækur ætlaðar börnum á aldrinum 6 til 8 ára. Þar, líkt og í hinum bókunum, fær lesandinn að ráða hvað gerist í sögunni en það eru yfir 10 möguleikar á að enda hvora bók, sem þýðir að hægt er að lesa þær aftur og aftur.



Evana Kisa hefur verið að teikna fyrir Ævar síðustu árin og hann segir hana algjöran töframann þegar kemur að því að teikna. Mynd/Evana Kisa
„Léttlestrarbækurnar eru afleggjari af bókunum sem ég gef út um jólin og heita Þín eigin, þar sem lesandinn ræður því sjálfur hvað gerist. Þessi afleggjari er með yfirtitilinn ,,Þín eigin saga“ og það sem kemur út núna í ágúst er annars vegar Búkolla og hins vegar Börn Loka. Í báðum tilfellum erum við með persónur sem við höfum hitt áður í Þín eigin-bókunum en í þetta skiptið eru bækurnar stílaðar inn á yngri lesendur – við erum með stærri stafi, einfaldara mál og heilan helling af æðislegum myndum eftir Evönu Kisu. Þetta er fullkomnar bækur fyrir þá sem eru að byrja í lestri.“

Ævar segir að ástæðan fyrir því að hann sé að færa sig yfir í þennan lesendahóp sé sú að mikilvægt sé að það sé til nóg lesefni fyrir krakka á öllum aldri og að hann vilji leggja sitt á vogarskálarnar þegar að því verkefni kemur.

„Ég veit að Þín eigin-bækurnar sem koma út um jólin, og eru rosa mikill texti, eru vinsælar og tala vel til krakka sem hafa engan sérstakan áhuga á lestri vegna þess að allt í einu er lesturinn orðinn leikur. Mikill texti er samt ekki fyrir alla þannig að ég hugsaði með mér að það gæti verið gaman að kynna Þín eigin-bækurnar og gagnvirka lestrarformið fyrir krökkum sem eru að byrja að lesa.“

Það að skrifa „einfaldari“ bók fyrir þennan aldursflokk reyndist þó alls ekki eins einfalt og mætti kannski halda.

„Þetta er líklega það erfiðasta sem ég hef skrifað. Þegar ég hélt að bækurnar væru tilbúnar sendi ég þær á tvær vinkonur mínar sem vinna í grunnskólum með krökkum á þessum aldri og eru báðar sérfróðar í því sem þær eru að gera. Ég fékk til baka „já, þetta er flott – en þetta eru ekki léttlestrarbækur“. Ég er höfundur sem vill gjarnan nota mörg orð og þurfti þess vegna að temja mér alveg nýjan stíl. Ég endurskrifaði báðar bækurnar aftur og aftur þar til ég fann rétta tóninn, sem tókst að lokum. Það er meira en að segja það að skrifa bók sem talar við þennan aldurshóp, er á einföldu en góðu máli og á sama tíma skemmtileg. Ég lærði því helling af þessu.“

Einnig er á leiðinni frá Ævari önnur bók í Þín eigin-seríunni fyrir jólin eins og venjulega og einnig Þitt eigið leikrit í Þjóðleikhúsinu í janúar. Ef það er svo ekki nóg þá á Ævar von á sínu fyrsta barni hvað úr hverju, með unnustu sinni Védísi Kjartansdóttur.

„Þetta er okkar fyrsta jú og það á að koma bara á næstu dögum! Þetta er mjög spennandi tími, allt að gerast.“


Tengdar fréttir

Tilnefningar til Lúðursins 2017 kynntar

Ímark, samtök markaðsfólks á Íslandi, kynnti í gær tilnefningar til Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna, fyrir síðasta ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×