Árásarmaðurinn í Toronto nafngreindur Kristín Ólafsdóttir skrifar 23. júlí 2018 22:37 Frá vettvangi árásarinnar í gríska hverfinu í Toronto í gær. Vísir/Getty
Yfirvöld í Kanada hafa nafngreint árásarmanninn sem skaut tvo til bana og særði þrettán í skotárás í Toronto í gær. Maðurinn, sem féll í skotbardaga við lögreglu, hét Faisal Hussain og var 29 ára gamall. Þá hefur önnur stúlknanna sem lést einnig verið nafngreind.Sjá einnig: Tveir látnir eftir kúlnahríð í Kanada Í yfirlýsingu frá fjölskyldu Hussain segir að hún votti aðstandendum fórnarlamba árásarinnar samúð sína vegna „hryllilegra gjörða sonar okkar.“ Þá sögðu foreldrar Hussain hann hafa glímt við alvarleg andleg veikindi. „Hjörtu okkar eru í molum til minningar um fórnarlömbin og fyrir borgina okkar,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni.Reese Fallon var nýútskrifuð úr framhaldsskóla og hugðist hefja háskólanám í haust.Mynd/FacebookGreint var frá því fyrr í kvöld að tvær stúlkur, tíu og átján ára, hefðu látist í árásinni. Aðeins önnur þeirra, sú eldri, hefur verið nafngreind en hún hét Reese Fallon. Nathaniel Erskine-Smith, þingmaður Toronto-borgar, staðfesti við fjölmiðla í dag að Fallon hefði látist í árásinni. Erskine-Smith lýsti ungu konunni sem bráðgáfaðri, ástríðufullri og drífandi. Fallon var nýútskrifuð úr framhaldsskóla og samkvæmt upplýsingum á Facebook-síðu hennar hugðist hún hefja nám við McMaster-háskólann í Ontario í haust. Árásin átti sér stað klukkan tvö í nótt að íslenskum tíma í gríska hverfinu í Toronto. Fjöldi fólks sat að snæðingi við veitingastaði götunnar þegar Hussain, vopnaður skammbyssu, hóf skothríð.
Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira