„Allt getur gerst ef við náum að lemja aðeins á þeim“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 20. mars 2018 14:30 Karen Knútsdóttir er mætt aftur í landsliðshópinn Vísir/Eyþór
Karen Knútsdóttir, annar landsliðsfyrirliða Íslands, er mætt aftur í íslenska kvennalandsliðið í handbolta eftir meiðsli og verður í liðinu sem mætir Slóveníu í tveimur leikjum í undankeppni EM 2018. „Það var virkilega gaman að hitta hópinn aftur og við erum búnar að ná góðum æfingum, byrjuðum á sunnudaginn, og erum vel gíraðar í morgundaginn,“ sagði Karen á blaðamannafundi HSÍ fyrir leikinn í dag. Karen á að baki 86 landsleiki fyrir Íslands hönd og hefur skorað í þeim 310 mörk. Hún sleit hásin í fyrsta leik tímabilsins með Fram, Meistarakeppni HSÍ, og spilaði ekkert með liðinu fyrir áramót. „Ég reiknaði ekki með að ná þessum landsleikjum. Það er rosalega gaman að vera komin aftur í hópinn, mér líður vel og ég er mjög spennt.“ „Ég er í mjög góðu standi og þessi meiðsli hrjá mig ekki neitt,“ sagði Karen aðspurð hvert ástandið á henni væri, því aðeins eru um 8 vikur síðan hún kom aftur í Framliðið. „Ég er kannski ekki komin alveg á mitt „level“ en það gengur vel samt.“ Ísland er í erfiðri stöðu í riðlinum í undankeppni EM. Liðið er á botninum án stiga eftir tvo leiki og síðasti leikur gegn Dönum í Laugardalshöll tapaðist með 15 mörkum, 14-29. Efstu tvö liðin fara í lokakeppnina ásamt liðinu sem er með bestan árangur í þriðja sæti úr riðlunum 7. „Ef við ætlum að fara upp úr þessum riðli og kannski stefna á þetta besta þriðja sæti þá verðum við að ná góðum úrslitum á morgun.“ „Það er búinn að vera mikill stígandi í liðinu og við höfum náð góðum úrslitum undanfarið þannig að ég er mjög spennt.“ Ísland tapaði fyrir Þýskalandi en náði svo í tvo sigra gegn Slóvakíu í vináttulandsleikjum sem fóru fram um mánaðarmót nóvember og desember. „Ef við náum upp mjög góðri vörn og náum að lemja aðeins á þeim og fá nokkur auðveld hraðaupphlaup þá held ég að allt geti gerst,“ sagði Karen Knútsdóttir. Leikur Íslands og Slóveníu hefst klukkan 19:30 annað kvöld og fer fram í Laugardalshöll. Frítt verður inn á leikinn fyrir alla aldurshópa.
Handbolti Mest lesið HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Fótbolti Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ Fótbolti „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Fótbolti Fleiri fréttir Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Sjá meira