Sport

Endaði næstum því á brjóstunum í beinni á ÓL þegar búningurinn hennar bilaði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Yura Min var næstum því komin úr að ofan eins og sést hér.
Yura Min var næstum því komin úr að ofan eins og sést hér. Vísir/EPA
Suður-Kóresku listdanskonunni Yuru Min tókst á einhvern hátt að bjarga sér frá einu vandræðalegasta mómenti í sögu Ólympíuleikanna um helgina. Hún hafði síðan mikinn húmor fyrir öllu saman eftir keppnina.

Yura Min fékk meiri athygli á vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang en árangurinn gaf tilefni til. 





Yura Min var að keppa í ísdansi para á leikunum og skautaði með Alexander Gamelin. Strax í upphafi dansins gerðist það sem er líklega ein af martröðum skautadansara eða annarra sem koma fram. Búningurinn gaf sig.

Martröðin að standa allt í einu nakin frammi fyrir fjölda áhorfenda var næstum því orðin að veruleika hjá Yuru Min.

„Eftir aðeins fimm sekúndur af dansinum þá losnaði krækjan,“ sagði Yura Min í viðtali við Detroit Free Press. Þetta var ekki hvaða krækja sem er heldur sú sem hélt efri hluta keppniskjólsins saman.

„Ég hugsaði: Ó nei,“ sagði Yura Min og bætti við: „Ef hún losnar þá gæti toppurinn dottið af. Ég var skelfingu lostin það sem eftir lifði dansins,“ sagði Yura Min.

Hún hætti samt ekki heldur hélt dansinum áfram eins og og ekkert hefði gerst. Eða næstum því ekkert.

„Ég hætti ekki því þá hefði ég fengið mínus. Ég var að velta því fyrir mér hvort ég ætti að hætta og laga þetta og eiga á hættu að fá mínus eða halda bara áfram,“ sagði Yura Min.

„Þetta voru fyrstu Ólympíuleikarnir mínir og okkar fyrsti dans. Það hefði verið skelfilegt hefði toppurinn dottið af mér. Ég var skelfingu lostin allan tímann,“ sagði Min.

Dansfélagi hennar tók eftir þessu um miðjan dansinn. Einu sinni þurfti hún að laga búninginn og hann er sannfærður um að þau hafi fengið mikinn mínus fyrir það. Þau enduðu í það minnsta í níunda sæti af tíu keppendum.

Yura Min hafði mikinn húmor fyrir öllu saman eins og sést á þessu myndbandi sem hún setti inn á Twitter-reikninginn sinn.





Yura Min þakkaði líka áhorfendunum fyrir stuðninginn með stuttum pistil á Twitter. Þetta verður ekki lífsreynsla sem hún gleymir í bráð.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×