Sport

Farangur íslensku Ólympíufaranna lengur á leiðinni en eigendurnir sínir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslensku keppendurnir á Ólympíuleikunum. Frá vinstri: Elsa Guðrún Jónsdóttir, Snorri Einarsson, Sturla Snær Snorrason, Isak S. Pedersen og Freydís Halla Einarsdóttir.
Íslensku keppendurnir á Ólympíuleikunum. Frá vinstri: Elsa Guðrún Jónsdóttir, Snorri Einarsson, Sturla Snær Snorrason, Isak S. Pedersen og Freydís Halla Einarsdóttir. Skíðasamband Íslands
Vetrarólympíuleikarnir verða settir í PyeongChang á sunnudaginn og það berast góðar fréttir frá Suður-Kóreu.

Allir fimm íslensku keppendurnir á Vetrarólympíuleikunum í PyeongChang 2018 eru komnir í Ólympíuþorpið eftir langt ferðalag frá Íslandi, Noregi og Bandaríkjunum.

Hluti farangurs skilaði sér reyndar ekki með hópnum en barst síðdegis í gær og því allt til reiðu fyrir dagskrá næstu daga.

Í íslenska keppnisliðinu eru alpagreinafólkið Sturla Snær Snorrason og Freydís Halla Einarsdóttir og svo skíðagöngufólkið Elsa Guðrún Jónsdóttir, Isak S. Pedersen og Snorri Einarsson.

Fyrsti dagurinn var tekinn rólega og hópurinn kynnti sér Ólympíuþorpið og þá aðstöðu sem þar er að finna auk þess sem að þjálfarar kynntu sér aðstöðu á keppnissvæði skíðagöngu og alpagreina.

Í dag, mánudaginn 5. febrúar, hefjast æfingar en fyrsti formlegi viðburðinn verður móttökuhátíð í Ólympíuþorpinu fimmtudaginn 8. febrúar næstkomandi og hefst hún klukkan tólf að staðartíma.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×