Dómarasamtökin viðurkenna mistök myndbandsdómarans Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 18. janúar 2018 17:00 Graham Scott gaf Willian gula spjaldið fyrir leikaraskap. Eins fengu Pedro og Alvaro Morata gul spjöld fyrir sömu brot áður en þeir fengu báðir annað gult spjald og þar með rautt. vísir/getty
Dómarasamtökin á Englandi hafa viðurkennt að myndbandsdómarinn hefði átt að grípa inn í þegar Willian var sýnt gula spjaldið í leik Chelsea og Norwich í gær. Antonio Conte gagnrýndi myndbandsdómgælsuna harðlega eftir leikinn, en Willian fékk gult spjald fyrir leikaraskap í stað þess að fá það sem Conte þótti vera augljós vítaspyrna.Sjá einnig: Conte ósáttur með myndbandsdómara: Willian átti að fá víti Samkvæmt heimildum Telegraph horfði Mike Jones, myndbandsdómari leiksins, oftar en tíu sinnum á tæklingu Timm Klose á Willian áður en hann ákvað að Graham Scott, dómari leiksins, hefði ekki gert augljós mistök í því að dæma ekki vítaspyrnu. Hins vegar þá snertust fætur leikmannanna, sem olli því að Willian féll til jarðar, svo Jones hefði getað komist að þeirri niðurstöðu að þetta væri vítaspyrna. Þótt það sé umdeilanlegt hvort um víti hafi verið að ræða eða ekki telja dómarasamtökin það klárt mál að Willian hefði aldrei átt að fá gult spald og þar hefði Jones átt að grípa inn í. Mistökin eru talin vera vegna þess að Jones hafi ekki tekið sér tíma í að skoða upptöku af atvikinu hægt, en á fullum hraða er ekki augljóst að snerting hafi átt sér stað. Willian á hins vegar engan rétt á því að áfrýja gula spjaldinu, þrátt fyrir þessar upplýsingar, því ekki er hægt að áfrýja gulum spjöldum á Englandi, aðeins dómarinn getur tekið þau til baka á meðan leik stendur.
Enski boltinn Mest lesið Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Sjá meira