Nýársspá Siggu Kling - Steingeitin: Fyrstu mánuðir ársins gefa þér tækifæri 5. janúar 2018 09:00
Elsku Steingeitin mín, lífið gengur svo rosalega hratt og í öllu saman er gott fyrir þig að aftengjast stressinu. Það mun koma þér á óvart, þegar þú hættir að stjórna og reyna að redda öllu, að þegar þú sleppir tökunum þá er eins og vandamálið leysist. Eins og þú virkar róleg og pottþétt þá þrífstu á adrenalíninu og tekur óþarfa áhættu til að halda spennu. Þú átt eftir að sjá nýjar hliðar á þér á þessu ári. Farðu til upprunans eða „back to basics“ og mundu hver þú í raun og veru ert. Þú hefur svo heillandi og bjartan persónuleika og elskar að raða hlutum í kringum þig, helst merkjavöru, því þú þolir ekki eftirlíkingar. Það er sko ekki hægt að segja að þú sért eftirlíking af nokkru merki. Janúar verður þér óvenju góður. Þú verður með tengslanetið þitt á hreinu og skemmtir þér vel. En þegar líður að febrúar og mars eru lögð fyrir þig erfið verkefni, að þér finnst, en þú verður alveg steinhissa á því hversu vel þú leysir þau. Það eru mjög margir í þínu merki sem hafa spáð í nýja vinnu eða nýjan skóla og fyrstu mánuðir ársins gefa þér tækifæri. Þar máttu svo sannarlega taka áhættu. Vorið gefur þér bestu stundir ársins og ástin á einhvern veginn heima nákvæmlega þar ef þú hefur einhvern áhuga á því. Það sem gæti verið það erfiðasta á þessu ári er að láta hluti ekki stýra þér. Að halda að þig vanti nýjan bíl, nýjasta símann eða að halda að það að eiga mikið í húsinu þínu gefi þér eitthvað er misskilningur. Í engu af þessu felst hamingjan því hún felst bara í sjálfri þér. Þú hefur svo mikinn kraft seinni part ársins, nóg að berjast við ofurefli og sigra það. Og á þessu ári er eins og þú endurfæðist og sjáir svo skýrt að allt er fullkomið eins og það er. Þér munu bjóðast merkileg tækifæri sem opna fyrir þér ný verkefni. Þú verður að vissu leyti hissa úr hverju þú ert búin til því þegar þú þarft þá færðu kraft Ofurmennisins og flýgur yfir erfiðleikana. Orðið „vorkunn“ á ekki að vera til í orðaforða þínum því að það lamar huga þinn og lætur allt standa alveg kyrrt. Þegar þú ert komin að enda ársins 2018 sérðu svo sannarlega að þetta er árið þitt. Þér finnst kannski ekki eins og allt sé fullkomið í ástinni en það er undir þér komið hvað þú vilt gefa í þessa dásamlegu orku. Ég hef sagt það áður að sú manneskja sem nælir sér í Steingeit sem maka er hólpin. Þú ert að eðlisfari trygglynd en átt það til að aftengja þig þeim sem þú elskar. Þú þarft að vera vel á verði því enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Á þessu ári færðu verðlaun eða viðurkenningu fyrir eitthvað sem þú ert að gera og það mun gefa þér aukakraft til að halda áfram á þessari braut því þú ert sigurvegari. Orðið til þín er: Superman, og dásamlega Steingeitin hann Laddi ætlar að hrista upp í lífi þínu með því lagi.Frægar Steingeitur: Guðjón Pétur Lýðsson markakóngur, Svava Johansen í Sautján, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, dr. Kristín Ólafsdóttir og Davíð Oddsson, Jón Gnarr, Elvis Presley, Gunnar Þórðarson, Tómas Guðbjartsson læknahetja, Lovísa Tómas, Dorrit Moussaieff forsetafrú, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, Jesús og Simmi á Fabrikkunni, Óttar Proppé, Ingveldur Ægissdóttir módir og kvunndagshetja, Hendrika Waage hönnuður, Laddi.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Lífið Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Lífið „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Lífið Stjörnum prýtt afmæli Nínu Lífið 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Lífið samstarf Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Lífið Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Lífið samstarf Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Lífið „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Lífið Fleiri fréttir Grín Gunnars Smára misvinsælt: „Öskuhaugur sögunnar“ Stjörnum prýtt afmæli Nínu „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Deila fyrstu myndunum af hvort öðru „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Krakkatían: Borgari, bækur og aðfangadagur jóla Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Slagsmálin tengd hrósi, ekki framhjáhaldi Fékk veipeitrun Fréttatía vikunnar: Ofbeldi unglinga, Spotify wrapped og Kærleikskúlan Björk beinir skilaboðum til stjórnar RÚV Plötuðu Sigríði Andersen til að stíga í alvöru hundaskít Jólalegasti garðurinn í hverfinu og töff jólaskreytingar inni og úti „RÚV plís ekki vera gungur og aumingjar“ Kveður fasteignir fyrir kroppa Róandi skýjadansari er litur ársins 2026 Mortal Kombat-stjarna látin Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Chanel og Snorri eiga von á syni Forritararnir borðuðu sveppina til að ná að vera aðeins lengur en hinir Stjórnmálamenn stigu trylltan dans í kjaftfullum Austurbæ „Ég er pínu meyr í dag“ Örlög Ísrael í Eurovision ráðast á aðalfundi sem hefst í dag Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Fannar leitaði lengi að transbrauði „Mamma, ég gat þetta“ Sjá meira