Nýársspá Siggu Kling - Meyjan: Hrindir merkilegum verkefnum í framkvæmd 5. janúar 2018 09:00
Elsku Meyjan mín, þú átt svo sannarlega skilið góða spá enda, samkvæmt talnaspeki, ertu á ellefunni sem er masterstala og þá fyrst er líf í tuskunum. Þetta er mikið tilfinningaár og þú sýnir ótrúlegasta fólki mikla tilfinningasemi og ert stöðugt að breyta og bæta velferð annarra og þín þá sömuleiðis í leiðinni. Þú átt eftir að hlaupa uppi draumana þína og þeir rætast að sjálfsögðu ekki allir því sumir draumar eru í raun martröð. Þú verður að umgangast fólk sem þekkir þig í raun, öll yfirborðsmennska í kringum þig getur komið þér á kaldan klaka. Það verða afgerandi breytingar í haust og þú sérð þegar líða tekur á veturinn að lífið fer fram úr björtustu vonum því þú ert með þennan dásamlega x-factor þó að fólk hræðist þig stundum en það er einfaldlega vegna þess að það þekkir þig ekki. Það verður yfir þér galdramáttur og þú hrindir svo merkilegum verkefnum í framkvæmd að samferðamenn þínir verða hissa. Ekki láta þig bara dreyma um hvað þú getur, heldur hrintu því í framkvæmd sem þú getur því upphaf alls hefst á einu skrefi svo þú þarft alls ekki að sjá allan stigann til þess að stíga í fyrstu tröppuna. Þegar fólk hugsar svo mikið um hvað það ætlar að gera, hvenær eða hvernig og allt þarf að vera svo fullkomið gerir það aldrei neitt, því aldrei er neitt nógu gott sem það gerir. Svo sáldraðu smá kæruleysi í líf þitt og treystu því að þú hafir vængi, því þú hefur þá svo sannarlega. Þér mun reynast auðvelt að ganga fram hjá eða henda frá þér þeim erfiðleikum sem hafa hrjáð þig síðustu misseri, því að bjartsýni mun einkenna þig á þessu ári en það þýðir bara að sjá lífið í bjartara ljósi og þessi orka er nú þegar komin í lífið þitt, svo einblíndu á það sem gengur vel því hitt á ekki heima hjá þér. Það er í eðli þínu að fara ekki auðveldustu leiðina en ég segi við þig: Farðu stystu leiðina því það mun margborga sig. Í ástamálum verður þetta ár þér gott en gerðu þér samt grein fyrir því hvort ástin skiptir þig máli og hvað skiptir þig aðalmáli. Þegar þú ert búin að átta þig á því ef þú ert á lausu, þá kemur til þín rétta manneskjan sem passar 100% við þig. Ef þú ert búin að vera að spá í einhvern og það hefur ekki gengið, segir kannski að við séum svona „semi“ saman, þá mun það aldrei ganga. Ástin byggist á vináttu og virðingu, ekki á spennu og stressi.Frægar Meyjur: Ragna Lóa Stefánsdóttir íþróttakona, Manuela Ósk fyrirsæta, Björk Eiðsdóttir ritstýra, Andrea fatalistamaður, Claudia Schiffer fyrirsæta, Edda Björgvinsdóttir leikkona, Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, ritstjóri og tískugúrú, Herdís Jóhannesdóttir athafnakona, Beyoncé Knowles söngkona, Gylfi Þór Sigurðsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona, Annie Mist crossfittari, Logi Pedro Stefánsson tónlistarmaður, Selma Ragnars, fatahönnuður Íslands, Lalli Johns góðkunningi lögreglunnar, Sema Erla Serdar, baráttukona, Eydís Ósk hjúkrunarkona. Setningin þín er: Þetta er þitt líf – This Is Your Life (Commodores).
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Fleiri fréttir RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira