Nýársspá Siggu Kling - Sporðdrekinn: Ekki hugsa að eitthvað hafi eyðilagt líf þitt 5. janúar 2018 09:00
Elsku Sporðdrekinn minn, þú ert með mjög mikinn kraft yfir þessu ári og munt hafa mun meiri stjórn á lífi þínu en þú hefur nokkurn tíma haft, en það eina sem mun hindra þig er að þú veljir að deyfa þig niður í andleysi eða nota efni eins og áfengi eða lyf til þess að stöðva hugsanir þínar. Það eru svo margir í þínu merki sem hafa náð ótrúlegum árangri með því að vera templarar eins og Magnús Scheving, Helga Braga og fleiri og fleiri. Að vera templari er einfaldlega að velja að nota ekki hugbreytandi efni í lífi sínu. Þú ert á rosalega sterkri tölu í talnaspekinni þetta árið og þetta verður sá tími sem þú ákveður hvernig þú vilt að framtíð þín fari. Fyrriparturinn af árinu byggist reyndar ekki á því heldur byggist hann á stormasamri hringiðu í kringum þig sem þú getur ósjálfrátt orðið þáttakandi í ef þú skiptir þér of mikið af. En stundum þarf maður ekki að hafa skoðun á öllu og öllum, heldur sleppa tökunum og leyfa lífinu bara að gerast. Þú ert svo „mórölsk“ manneskja svo það gæti eitthvað gamalt tekið sig upp og eyðilagt fyrir þér í dag, en þú hefur val svo þú skalt velja að vera í núinu og velja að gera þitt besta nákvæmlega hér og nú eða eins og ég kalla: „Að vera eða to be“. Af svona móral myndast nefnilega streita og af streitunni myndast veikindi, og ef þú finnur fyrir þessu spurðu þá sjálfan þig: „Af hverju er þetta svona?“ Og það er svo merkilegt að ef þú spyrð veröldina þá færir hún þér svarið. Þú ert nefnilega eitt öflugasta merkið í að skynja hlutina og taka við hugboðum og það er nákvæmlega það sem spámaður gerir; það er fyrsta hugboð sem skiptir máli svo farðu að leyfa þér að gera það sem þú vilt og hlustaðu á hugboðin og svörin. Það er mikið drama í þér og þú heldur stundum að þú yrðir hamingjusamari ef þú hefðir meiri peninga, betri vinnu eða ættir barn eða eitthvað annað, en hamingjan liggur aldrei í þessu, hún byrjar áður og í sjálfum þér því ekkert veitir þér hamingju nema þú og þín eigin hugsun og tilvera. Ekki leyfa þér að hugsa að eitthvað hafi eyðilagt líf þitt og þess vegna getirðu ekki haldið áfram, því hugsun þín verður að orku og þar af leiðandi þinn veruleiki. Ég hef áður sagt að það séu til tvenns konar Sporðdrekar; þeir sem eru langt yfir meðallagi í lífinu eða þeir sem telja að þeir hafi orðið undir í lífinu og ekkert hafi gerst hjá þeim. Orð og hugsanir hafa afl og ég skrifaði einu sinni „Orð hafa álög“ svo ef þú ert sá Sporðdreki sem ert leiður og finnst ekkert gott hafa gerst hjá þér, ekkert sem þú hélst að myndi veita þér hamingju, breyttu þá orðum þínum og hugsunum og það gerist smátt og smátt með breyttu hugarfari. Hins vegar ertu á dásamlegu ári til að breyta svo mörgu í kringum þig, en þú verður bara að vita hvað þú vilt og trúa á það því að þá mun lífið færa þér það. Þeir sem eru á lausu eiga að hætta að spá í þá týpu sem þeir héldu að myndi henta þeim, eða eins og fólk segir oft: „Þetta er mín týpa“, því að svarið til þín og þíns ástarvesens er: Gefðu öðruvísi týpum séns. Fyrir þá sem eru óhamingjusamir í sambandi og hafa verið lengi verður þetta ár uppgjörs, svo spennandi tímar eru framundan, elskan mín.Frægir Sporðdrekar: Birkir Már Sævarsson landsliðsmaður, Dísa í World Class, Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Scarlett Johansson leikkona, Whoopie Goldberg leikkona, Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona, Emmsjé Gauti rappari, Björk, Indira Ghandi, Karl bretaprins, Hillary Clinton, Leonardo DiCaprio, Magnús Scheving, Steingrímur Sævarr Ólafsson fjölmiðlaráðgjafi, Guðný Hrefna Sverrisdóttir, flugfreyja og gourmé kokkur, Hörður Ágústsson Macland snillingur.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Lífið Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Lífið „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Lífið Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Lífið Stjörnum prýtt afmæli Nínu Lífið 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Lífið samstarf Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Lífið samstarf Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Lífið Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Lífið Fleiri fréttir Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Stjörnum prýtt afmæli Nínu „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Deila fyrstu myndunum af hvort öðru „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Krakkatían: Borgari, bækur og aðfangadagur jóla Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Slagsmálin tengd hrósi, ekki framhjáhaldi Fékk veipeitrun Fréttatía vikunnar: Ofbeldi unglinga, Spotify wrapped og Kærleikskúlan Björk beinir skilaboðum til stjórnar RÚV Plötuðu Sigríði Andersen til að stíga í alvöru hundaskít Jólalegasti garðurinn í hverfinu og töff jólaskreytingar inni og úti „RÚV plís ekki vera gungur og aumingjar“ Kveður fasteignir fyrir kroppa Róandi skýjadansari er litur ársins 2026 Mortal Kombat-stjarna látin Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Chanel og Snorri eiga von á syni Forritararnir borðuðu sveppina til að ná að vera aðeins lengur en hinir Stjórnmálamenn stigu trylltan dans í kjaftfullum Austurbæ „Ég er pínu meyr í dag“ Örlög Ísrael í Eurovision ráðast á aðalfundi sem hefst í dag Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Fannar leitaði lengi að transbrauði Sjá meira