Nýársspá Siggu Kling - Bogmaðurinn: Þetta verður tvöfalt skemmtilegra ár en í fyrra 5. janúar 2018 09:00
Elsku Bogmaðurinn minn, þú ert búinn að fara í gegnum áhrifaríkt ár þar sem þú hefur tekið á hlutunum eins og þú getur. Þetta ár sem þú siglir inn í núna verður þér miklu léttara en samt svo spennandi og krefjandi. Þar sem þú elskar ferðalög og allt sem er krefjandi verður mikið af því, þetta er líka ár fyrir alla sem ætla að breyta um samastað og það er mikil heppni í kringum allt sem tengist því. „Taktu áhættu!“ kallar árið 2018 á þig því það mun margborga sig að gera lífið enn meira krefjandi en það hefur verið hingað til. Þar sem þú ert nýbúinn að eiga afmæli, sem eru þín persónulegu áramót, skaltu þá skoða vel hvað hefur verið að gerast síðustu 60 daga, því þá geturðu séð einhvers konar skilaboð um hvað er í vændum hjá þér. Það eina sem getur stoppað þig er að vera hræddur við allar breytingar en það er alls ekki óalgengt að fólk í þessu merki óttist nýjungar eða hreyfingar í lífinu. Ef þér finnst að ekkert hafi breyst í langan tíma ertu ekki í réttum farvegi í átt að framtíð þinni, þetta ár gefur þér svo sannarlega tækifæri til að breyta svörtu í hvítt, svo taktu áhættu og gerðu ævisöguna meira kryddaða og mundu að það vill enginn fá þreytandi minningargreinar um sjálfan sig. Fyrri parturinn af árinu gefur þér of mikinn hraða í huganum svo þú getur ekki alveg greint hvað þú vilt og hvað þú vilt ekki, þá ferðu í hlutlausa gírinn og stendur ekki upp fyrir sjálfum þér eða öðrum og það er akkúrat tíminn sem þér finnst ekkert vera að gerast. Þú ert sveipaður svo mikilli dulúð og fólki finnst þú spennandi, en þú ert samt svo venjulegur og hreinn og beinn og það er það sem gefur þér meira vægi. Þú hefur ekki hugmynd um hvað margir sækjast eftir félagsskap þínum en fáir komast í þinn innsta hring. Þetta verður tvöfalt skemmtilegra ár en í fyrra og það er aldeilis mikið, til hamingju með það. En þegar apríl eða maí kemur inn í líf þitt ertu búinn að taka svo kröftuglega á málunum og orðinn svo sáttur við sjálfan þig – mundu bara að enginn er mikilvægari í að vera sáttur við þig en þú sjálfur. Svolítil frestunarárátta hefur verið í gangi og árátta er frekar ömurlegt orð, notaðu því heldur tímann sem þér er gefinn í byrjun ársins til að ljúka því sem þér leiðist og byggja upp það sem þig vantar til að geta verið stoltur af sjálfum þér. Á þessu ári sérðu svo vel hvað þú hefur gert rétt, en sérð líka svo vel hvað þú hefðir mátt gera betur, en ekki dvelja við þetta eina mínútu heldur stingdu þér beint í djúpu laugina því lífið stendur með þér og þú verður að athuga að Júpíter, pláneta góðs gengis, mun færa þér ótrúlega heppni svo mundu að treysta því að hlutirnir og lífið gangi vel, þá munu þeir ganga vel.Frægir Bogmenn: Ingvar E. Sigurðsson leikari, Björgvin Franz Gíslason leikari, Edda Heiðrún Backman leikkona, Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona, Sigrún í Gyðja Collection, Steindi, Bryndís Ásmundsdóttir, leik- og söngkona, Jóhanna Vilhjálmsdóttir, fjallkona og leikkona, Logi Bergmann Eiðsson sjónvarpsmaður, Jói á Fabrikkunni, Sigga Dögg kynfræðingur, Hemmi, hársnillingur á Módus, Lovísa, hönnuður hjá Kjólar og konfekt. Setningin þín er: Lifðu hvern dag eins og það sé þjóðhátíð og lagið til þín er með uppáhalds Bogmanninum mínum, honum Steinda, og fallega Krabbanum, honum Audda Blö, ásamt Nautinu eina sanna, Gilzenegger – Ég fer á þjóðhátíð (FM95BLÖ).
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið Ástfangin pör á Djöflum Menning Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Fleiri fréttir RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira