Þrettán íslensk mörk í tapi Westwien Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 9. mars 2018 19:41 Ólafur Bjarki Ragnarsson. Vísir
Íslendingarnir í liði Westwien halda áfram að draga vagninn í markaskorun liðsins en þeir voru tveir markahæstu mennirnir í tapi Westwien gegn Alpla í austurrísku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Viggó Kristjánsson var markahæstur með 7 mörk og kom Ólafur Bjarki Ragnarsson næstur með 6 mörk. Mörk Ólafs komu snemma leiks og hann átti tvö fyrstu mörk leiksins og fjögur af fyrstu fimm mörkum Westwien. Heimamenn í Alpla fóru inn í leikhléið með tveggja marka forystu, 18-16. Þeir áttu svo 7-1 kafla snemma í seinni hálfleik sem gerði út um leikinn. Gestirnir náðu aðeins að krafsa í bakkann, en þó ekki nóg til þess að stela sigrinum. Alpla er á toppi deildarinnar, sjö stigum á undan Westwien sem er í fjórða sætinu. Viggó, sem hefur dregið vagninn fyrir Westwien í markaskorun í vetur, er þriðji markahæsti maður deildarinnar með 109 mörk í 18 leikjum. Hann á þó litla möguleika á að verða markahæstur en efsti maður, Srdjan Predragovic í liði Linz, er með 180 mörk í 18 leikjum.
Handbolti Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira