Parinu fyrirskipað að skila milljónunum Kristín Ólafsdóttir skrifar 31. ágúst 2018 14:26 Kate McClure og Johnny Bobbitt.
Dómari í New Jersey í Bandaríkjunum hefur fyrirskipað bandaríska parinu, sem safnaði um 40 milljónum króna handa heimilislausum manni, að skila manninum peningnum. Maðurinn, Johnny Bobbitt, hefur staðið í deilum við parið undanfarna mánuði og sakað það um að eyða fénu í lúxusvarning. Dómarinn gaf parinu, Kate McClure og Mark D‘Amico, frest þangað til síðdegis í dag, föstudag, til að millifæra það sem eftir er af peningnum á reikning í umsjón lögfræðings Bobbitts.Sjá einnig: Sakar miskunnsömu samverjana um að eyða milljónunum í lúxusvarning Greint var frá því í gær að Bobbitt hefði stefnt parinu fyrir fjársvik á þriðjudag. Hann gerði jafnframt tilkall til hinna 400 þúsund Bandaríkjadala, eða um 43 milljóna íslenskra króna, sem söfnuðust handa honum í GoFundMe-söfnun á netinu. Haft var eftir D‘Amico á mánudag að um 150 þúsund dalir, 16 milljónir íslenskra króna, væru eftir af peningnum. Upphaf málsins má rekja til þess að Bobbitt notaði síðustu aura sína til þess að kaupa bensín á bíl McClure er hún varð eldsneytislaus á hraðbraut í New Jersey í Bandaríkjunum seint um kvöld. Í kjölfarið ákváðu McClure og D‘Amico að hrinda af stað hópfjáröflun. Ætlunin var að safna fyrir innborgun á íbúð og bíl fyrir Bobbitt, sem er fyrrverandi hermaður og hefur glímt við eiturlyfjafíkn. Bobbitt steig þó nýlega fram og sakaði parið um að hafa eytt hluta fjársins í frí, lúxusbifreið og fjárhættuspil. Þá hafi fólkið svikið loforð um íbúða- og bílakaup handa Bobbitt. Parið segir Bobbitt hins vegar hafa eytt öllum pening sem honum var gefinn í eiturlyf.
Bandaríkin Tengdar fréttir Söfnuðu milljónum fyrir góðhjartaðan heimilislausan mann Johnny Bobbitt eyddi síðasta peningnum sínum til að kaupa eldsneyti fyrir konu í basli. Konan og kærasti hennar efndu til hópfjáröflunar fyrir Bobbitt sem sló í gegn. 24. nóvember 2017 16:42 Sakar miskunnsömu samverjana um að eyða milljónunum í lúxusvarning Johnny Bobbitt, heimilislaus maður sem var miðpunktur milljónahópfjáröflunar bandarísks pars í fyrra, sakar parið, Kate McClure og Mark D'Amico, um að stela peningunum sem söfnuðust fyrir hann og verja þeim í allskyns lúxusvarning. 27. ágúst 2018 08:52 Stefnir miskunnsömu samverjunum fyrir fjársvik Síðustu vikur hefur Bobbitt sakað parið um að stela af sér peningunum sem söfnuðust fyrir hann og verja þeim í allskyns lúxusvarning. 30. ágúst 2018 08:55 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Fleiri fréttir Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira
Söfnuðu milljónum fyrir góðhjartaðan heimilislausan mann Johnny Bobbitt eyddi síðasta peningnum sínum til að kaupa eldsneyti fyrir konu í basli. Konan og kærasti hennar efndu til hópfjáröflunar fyrir Bobbitt sem sló í gegn. 24. nóvember 2017 16:42
Sakar miskunnsömu samverjana um að eyða milljónunum í lúxusvarning Johnny Bobbitt, heimilislaus maður sem var miðpunktur milljónahópfjáröflunar bandarísks pars í fyrra, sakar parið, Kate McClure og Mark D'Amico, um að stela peningunum sem söfnuðust fyrir hann og verja þeim í allskyns lúxusvarning. 27. ágúst 2018 08:52
Stefnir miskunnsömu samverjunum fyrir fjársvik Síðustu vikur hefur Bobbitt sakað parið um að stela af sér peningunum sem söfnuðust fyrir hann og verja þeim í allskyns lúxusvarning. 30. ágúst 2018 08:55