Börn bitin af hákörlum í New York Stefán Ó. Jónsson skrifar 19. júlí 2018 06:52 Talið er að Lola Pollina muni ná sér að fullu. Barbara Police
Talið er að hákarlar hafi bitið tvö börn sem synt höfðu í sjónum við New York-ríki í Bandaríkjunum á dögunum. Ef rétt reynist er um að ræða fyrstu hákarlaárásirnar í ríkinu í 70 ár. Börnin, 12 ára stelpa og 13 ára strákur, hafa bæði verið útskrifuð af sjúkrahúsi. Þau höfðu bæði fengið lítil stungusár á lappirnar og búist er við því að þau muni ná sér að fullu. Úr sári drengsins var dregin það sem virðist vera lítil tönn, tönn sem talin er hafa verið í skolti lítils hákarls. Tönnin hefur verið send til greiningar og búist er við niðurstöðum á næstu vikum. Árásirnar eru ekki taldar tengjast með beinum hætti, þær áttu sér stað með nokkurra daga millibili og rúmlega 3 kílómetrar eru á milli svæðanna þar sem börnin slösuðust. Stúlkan segist í samtali við fjölmiðla ytra vera handviss að um hákarl hafi verið að ræða. Hún hafi fundið fyrir sársauka í fætinum og tekið þá eftir því að hann var allur blóðugur. Því næst hafi hún rekið auga í ugga á því sem virtist vera um eins metra langur hákarl. Sem fyrr segir eru hákarlaárásir gríðarlega sjaldgæfar í ríkinu. Aðeins er vitað um 10 tilfelli, það síðasta árið 1948.Hér að neðan má sjá frétt ABC um málið.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira