Norsku stelpurnar kláruðu sitt en nú þurfa þær og Þórir bara að bíða Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. desember 2018 16:12 Stine Bredal Oftedal. Vísir/EPA
Norska kvennalandsliðið í handbolta vann sinn þriðja sigur í röð á EM kvenna í handbolta í Frakklandi í dag en það kemur ekki í ljós fyrr en seinna í kvöld hvort það nægir til að koma þeim í undanúrslitin. Norska liðið vann þá sjö marka sigur á Spáni, 33-26, en spænska liðið hefur tapað öllum þremur leikjum sínum í milliriðlinum. Dönsku stelpurnar gerðu á sama tíma út um allar vonir Svartfjallalands um að komast í undanúrslit þegar Danmörk vann eins marks sigur á Svartfjallalandi, 24-23 eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir í hálfleik, 15-11. Danska liðið átti ekki möguleika á því að komast í undanúrslitin eftir tap fyrir Rússlandi og Frakklandi í tveimur fyrstu leikjum sínum í millriðlinum sínum.26:33 @NORhandball have done their job and now await the results of the next Group II matches to learn their semi-final fate #ehfeuro2018#handballissime#ESPNOR@RFEBalonmanopic.twitter.com/Asj5TfNyAu — EHF EURO (@EHFEURO) December 12, 2018 Norska liðið tapaði tveimur af fyrstu þremur leikjum sínum á mótinu en Þóri Hergeirssyni, íslenskum þjálfara þeirra, hefur heldur betur náð að koma liði sínu í gírinn í milliriðlinum þar sem liðið vann þrjá leiki sína með 11 mörkum að meðaltali. Noregur hafði áður unnið þrettán marka sigra á Ungverjalandi (38-25) og Hollandi (29-26). Stine Bredal Oftedal, fyrirliði norska liðsins, var markahæst með 8 mörk en hornamennirnir Camilla Herrem og Malin Aune skoruðu báðar fjögur mörk. Stine Bredal Oftedal var valin besti leikmaður vallarins af mótshöldurum en hún átti einnig fimm stoðsendingar og kom því með beinum hætti að þrettán mörkum norska liðsins í leiknum. Noregur endar með sex stig í riðlinum og er nú við hlið Rúmeníu og Hollands sem eiga bæði leik inni í dag. Það gæti farið að innbyrðisviðureignir ráði röð efstu liðanna þegar leik lýkur í kvöld. Spænsku stelpurnar komust í 7-4 í upphafi leiks og héldu í við þær norsku í fyrri hálfeik. Norska liðið var aðeins einu marki yfir í hálfleik, 18-17. Þórir Hergeirssonar stillti sínar stelpur af í hálfeik og þær unnu fyrstu sex mínútur seinni hálfleiksins 6-3 og komust í 24-20. Fimm norsk mörk í röð um miðjan hálfleikinn gerðu síðan út um leikinn en þær norsku komust með þeim frábæra kafla í 31-22.
Handbolti Mest lesið Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Eygló íþróttastjarna ársins í Reykjavík Sport Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Fótbolti Man United ósátt við Marokkó og FIFA Enski boltinn KSÍ missti af meira en milljarði króna Fótbolti Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti Sagður utan hóps á kostnað Bjarka og Orra Handbolti Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Sport Fleiri fréttir Sagður utan hóps á kostnað Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít „Fannst við bara lélegir í kvöld“ Botnliðið hrellti Aftureldingu og KA lék sér að eldinum Flott endurkoma FH og Valur vann í 83 marka leik Elliði framlengir dvölina í Gummersbach Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Tíu mörk frá Hauki ekki nóg Reistad valin best og Katrine Lunde besti markvörðurinn Ómar Ingi fiskaði vítið sem gaf sigurmarkið í Íslendingaslag Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Einar Bragi fór mikinn í mikilvægum sigri Afhentu Akureyringum fimmta tapið í röð Donni markahæstur í dramatískum sigri Frakkar fengu bronsið eftir spennutrylli Eyjakonur gerðu sér góða ferð upp á land Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Íslendingaliðin unnu öll og skipa sér í þrjú efstu sætin Bjarki Már raðaði inn mörkunum í seinni hálfleik Stelpurnar okkar mættar aftur í Olís deildina Sjá meira