Kórar Íslands með Friðriki Dór: „Hef enga reynslu af því að syngja í kór“ Stefán Árni Pálsson skrifar 4. september 2017 14:30 Friðrik Dór hlakkar til að vera kynnir, sérstaklega er hann spenntur fyrir beinu útsendingunni. Ari Bragi, Bryndís Jakobs og Kristjana Stefánsdóttir eru í dómnefnd. Vísir/Eyþór
Kórar Íslands er nýr skemmtiþáttur sem verður á dagskrá Stöðvar 2 í vetur en Friðrik Dór Jónsson, einn ástsælasti söngvari landsins, verður kynnir þáttanna. Dómnefndina skipa tónlistarfólkið Kristjana Stefánsdóttir, Ari Bragi Kárason, og Bryndís Jakobsdóttir. „Þetta leggst bara hrikalega vel í mig og ég held að þarna verði rosalega mikið af skemmtilegu fólki og týpum til að vinna með,“ segir Friðrik Dór spenntur fyrir vetrinum. „Þetta er nýjung í íslensku sjónvarpi og við getum fagnað því þegar fólk þorir að prófa eitthvað nýtt. Það verður rosalega gaman að fylgjast með öllu þessu nýja sjónvarpsfólki sem myndar þessa frábæru dómnefnd.“ Friðrik segist vera byrjaður að funda með dómnefndinni og undirbúningsvinnan sé í fullum gangi en þættirnir eru framleiddir af Sagafilm. „Þetta verður í raun allt saman í beinni útsendingu og því eru tökurnar ekkert sérstaklega flóknar fyrirfram en þættirnir eru átta talsins.“ Hann segir að búið sé að finna tuttugu kóra sem taka þátt í þessari þáttaröð og eru þeir mjög fjölbreyttir og skemmtilegir. Fyrstu fimm þættirnir eru einskonar undankeppni og komast tíu kórar áfram í undanúrslitin. Síðan verða tveir þættir til að skera hópinn niður í fjóra kóra sem keppa til úrslita sunnudaginn 12. nóvember. Tólf aðilar, í það minnsta, verða að vera í hverjum kór fyrir sig. „Sjálfur hef ég hundrað prósent enga reynslu af því að syngja í kór og gæti aldrei stýrt kór. Ég er bara kynnir og það eru aðrir í dómnefnd sem taka þetta á faglegu nótunum. Ég verð bara þarna eitthvað að bulla.“Kórar Íslands hefst í september. DómnefndAri Bragi Kárason trompetleikari og spretthlaupari Ari Bragi er afreksmaður á tveimur sviðum, hann er einn af bestu trompetleikurum landsins og er í íslenska landsliðinu í frjálsum íþróttum. Ari Bragi hefur leikið inn á hljómplötur með stórstjörnum á borð við Norah Jones, auk fjölmargra af þekktustu tónlistarmönnum landsins eins og Sigur Rós, Hjaltalín, Bubba Morthens, Jóel Pálssyni og Stórsveit Reykjavíkur. Ari Bragi útskrifaðist frá Tónlistarskóla FÍH árið 2008 af jazz- og rokkbraut auk þess að ljúka á sama tíma námi af klassískri braut skólans. Eftir það hélt hann til náms í New York og útskrifaðist með láði frá New School for Jazz and Contemporary Music árið 2012.Bryndís Jakobsdóttir söngkona og lagasmiður Stuðmannabarnið Bryndís Jakobsdóttir, eða Dísa eins og hún er kölluð, er tónlistarkona sem hefur heillað land og þjóð með dásamlegri rödd sinni og tónsmíðum. Dísa hefur numið og starfað í Danmörku undanfarin ár.Dísa úrskrifaðist sem lagasmiður úr tónlistarskólanum Rytmisk Musikkon-servatorium en hún er einnig lærður íþróttanuddari.Hún hefur samið tónlist fyrir auglýsingar og kvikmyndir en nýjasta lagið hennar Reflections situr á vinsældalistum landsins þessa dagana. Dísa starfaði sem tónlistarkennari í Danmörku og stjórnaði tveimur kórum þar.Kristjana Stefánsdóttir söngkona, tónlistarstjóri og tónskáld Kristjana Stefánsdóttir er ein ástsælasta söngkona landsins og Edduverðlaunahafi 2016 fyrir tónlistina í Bláa hnettinum. Kristjana lauk námi í jazzsöng frá Konunglega Listaháskólanum í Haag í Hollandi vorið 2000 undir handleiðslu Rachel Gold, en áður hafði hún lokið söngnámi við Söngskólann í Reykjavík. Kristjana hefur einnig lokið námi í söngtækni hjá Cathrine Sadolin í Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn 2005. Kristjana hefur víða komið fram sem jazzsöngkona, á Íslandi, í Hollandi, Englandi, Þýskalandiog Finnlandi.
Kórar Íslands Mest lesið Föst með dauða tölvu og reynir að undirbúa stjórnarfund Lífið Magnús Kjartan leggur brekkusönginn á hilluna Lífið Stjörnulífið: Sjóðheitar í gusugufu Lífið Eyþór Arnalds og Ástríður bíða eftir barni Lífið „Íslensk snjókoma“ og ruslabílarnir nýttir í moksturinn Lífið Flestir fróa sér til viðbótar við kynlíf með maka Lífið Fékk yfir hundrað skilaboð á dag Lífið Forstjórinn sem fór á atvinnuleysisbætur Áskorun Sneri lífi sínu við eftir að faðir hans fyrirfór sér Lífið Frægðin steig Magna til höfuðs en aðeins í skamma stund Lífið Fleiri fréttir Föst með dauða tölvu og reynir að undirbúa stjórnarfund Magnús Kjartan leggur brekkusönginn á hilluna „Íslensk snjókoma“ og ruslabílarnir nýttir í moksturinn Farin frá Form Henti keilukúlu, melónu og örbylgjuofni niður úr átta metra hæð Sneri lífi sínu við eftir að faðir hans fyrirfór sér Eyþór Arnalds og Ástríður bíða eftir barni Stjörnulífið: Sjóðheitar í gusugufu Flestir fróa sér til viðbótar við kynlíf með maka „Hugurinn skiptir öllu máli“ Við erum tengdari en nokkru sinni en höfum aldrei verið jafn einmana Fékk yfir hundrað skilaboð á dag Krakkatía vikunnar: Bollur, sólmyrkvar og skilti Yfirgefinn apaungi finnur huggun í apabangsa úr Ikea Áhorfið rýkur upp þegar minnst er á Ísland Frægðin steig Magna til höfuðs en aðeins í skamma stund Minnist sonar síns og styður við börn í sorg Fréttatía vikunnar: Lilja, eitur og krulla Bleikar kollur, gellur og gaurar Einn sá efnilegasti ætlar að verða sá fyrsti inn á Ólympíuleika Halla Vilhjálms flutt í Fossvoginn Á leið á flugvöllinn þegar fluginu var flýtt Hitti Gísla á Uppsölum á skyggnilýsingafundi Frá einni ofurbombu til annarrar Eric Dane er látinn Þeim fjölgar sem skilja Íslensk Barbí og Ken: „Litaði bara hárið og fór í sprey-tan“ Vigdís og Gerald Häsler selja húsið Nýtt verk frá Martin en samt kvarta aðdáendur Falsmyndir af sólmyrkva vella fram: „Gervigreindin er plága“ Sjá meira