Ein af stelpunum hans Þóris grét í leikslok þrátt fyrir stórsigur í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. desember 2017 18:00 Þórir Hergeirsson og stelpurnar hans eru í miklu stuði. Vísir/Getty
Norska kvennalandsliðið í handbolta er á mikill siglingu og hefur brunað yfir þrjá fyrstu mótherja sína á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi. Stelpurnar hans Þóris Hergeirssonar unnu fimmtán marka sigur á Pólverjum í gær og hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína með 12,7 mörkum að meðaltali í leik. Norsku stelpurnar voru líka allar brosandi í leikslok í gærkvöldi með einni undantekningu. Hin 24 ára gamla Emilie Christensen skar sig úr því hún barðist við tárin í leikslok. Emilie Christensen er á sínu fyrsta stórmóti með norska landsliðinu og ætlaði heldur betur að sanna sig fyrir Þóri í leiknum í gær. Hún klikkaði hinsvegar á báðum skotum sínum í leiknum og tapaði líka einum bolta til mótherjanna. Emilie var eini leikmaður norska liðsins sem skoraði ekki fyrir utan tvo markverði liðsins. „Það var ekki ætlunin að gráta,“ sagði Emilie Christensen við Dagbladet en hún lék í ellefu mínútur í leiknum. Hún er leikstjórnandi Larvik HK í Noregi og hafði aðeins spilað þrjá landsleiki fyrir mótið. „Ég æfi allt árið fyrir þetta og svo gengur ekkert upp hjá manni inn á vellinum. Ég var búin að byggja upp væntingar hjá mér sjálfri og þá getur fallið verið hátt. Það klikkaði bara allt hjá mér. Ég klikkaði á skotunum og skaut ekki þegar ég átti að skjóta. Nú er ég búin að gráta í næstum því heilan sólarhring,“ sagði Christensen þegar hún hitti blaðamann daginn eftir leikinn. Það er mikil samkeppni um sæti í norska liðinu sem er ríkjandi heims- og Evrópumeistari og það er auðvitað mikið samkeppni um mínútur líka. Emilie hefur farið yfir þetta með öðrum stelpum í norska liðinu og segist fá mikinn stuðning frá þeim. Nú er að sjá hvað Þórir gerir í næstu leikjum, hvort hann hafi gefist upp á henni eða ætli að gefa henni fleiri mínútur. „Ég má ekki brjóta sjálfa mig niður. Ég verð bara að bíta á jaxlinn og gera betur í næsta leik. Þetta er engin staður eða stund til að gráta,“ sagði Emilie Christensen að lokum.
Handbolti Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn ÍA-Stjarnan 5-1: Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Íslenski boltinn Björgvin Karl vann sitt þriðja brons á heimsleikunum Sport Endurkomur hjá kærustuparinu: „Þakklát og hamingjusöm“ Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Kvenkyns dómari slasaðist í slagsmálum í vináttuleik Fótbolti Kláraði Harvard og samdi við Blika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira