Götulistamönnum var úthlutað veggjunum sem þeir skreyttu, innblásnir af lagatextum hljómsveita. Myndin á vegg Sjávarútvegshússins var máluð af hópnum Evoca1 og var innblásin af texta lagsins Gonna Make Time með sveitinni Shaun & Starr. Myndirnar urðu alls tíu. Aðeins hefur verið hróflað við einu öðru verki en það prýddi hús í einkaeigu.
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Iceland Airways, segir í samtali við fréttastofu að hvíti veggurinn hafi komið flatt upp á sig og að ekki hafi verið málað yfir sjómanninn í samráði við aðstandendur tónlistarhátíðarinnar, sem fjármagnaði verkið, eða listamennina. Myndirnar megi vera á húsunum eins lengi og eigendur húsanna vilja.
Hér að neðan má sjá færslu sem Grímur birti í gær og sýnir breytinguna á veggnum.
Því hafi þó verið leyft að lifa í eitt ár í viðbót og málað yfir það nú í byrjun ágúst.
Aðspurður hvort ekki sé eftirsjá af sjómanninum segir Sigurður svo vera. „Ég sakna hans nú en það er eins og með margt annað í þessum heimi, sumir nágrannanna voru víst ekkert ánægðir með hann,“ segir forstjórinn.
Það helst í hendur við heimildir Vísis sem herma að það hafi ekki síst verið vegna óánægju íbúa í Skuggahverfinu með sjómanninn sem ákveðið hafi verið að mála yfir verkið.