Jafnframt sagði Clapper að Rússar hafi ekki aðeins staðið fyrir innbroti í tölvupóstana heldur einnig dreift áróðri og fölskum fréttum í því skyni að tryggja sigur Donlands Trump í kosningunum.
Sérstök skýrsla um málið verður kynnt almenningi í næstu viku. Með þessu gerir Clapper lítið úr yfirlýsingum Trump sem hefur sagt að hann efist um að Rússar hafi á einhvern hátt reynt að beita sér í kosningunum. Hann tók einnig fram að engin leið væri fyrir bandarískar leyniþjónustur að sjá hvort að Rússar hefðu í raun haft áhrif á niðurstöður kosninganna.
Talið er ólíklegt að í skýrslunni sem birt verður almenningi í næstu viku verði afgerandi sannanir um aðkomu rússnesku hakkaranna, en einungis hluti skýrslunnar verður birtur þar sem hún er leyndarmál. Öryggisfyrirtæki og sérfræðingar hafa þó verið sannfærðir um aðkomu Rússa að tölvuárásum gegn demókrötum og Hillary Clinton um margra mánaða skeið.
„Ég tel að almenningur eigi að vita eins mikið um þetta mál og hægt er. Því munum við vera eins afdráttarlausir og við getum, en við erum að eiga við leynilegar og viðkvæmar heimildir og aðferðir,“ sagði Clapper.
Hann tísti um málið í gærkvöldi þar sem hann hélt áfram að draga þetta í efa. Trump hefur verið sakaður um að grafa undan trúverðugleika leyniþjónusta Bandaríkjanna með tístum sínum og ummælum.
Trump mun þó funda með Clapper og John Brennan, yfirmanni CIA, í dag.
Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, fór hörðum orðum um Trump í gær og sagði tími til kominn að hann yxi úr grasi. Hann sagði hættulegt að hafa verðandi forseta sem gagnrýndi leyniþjónustur Bandaríkjanna opinberlega með þessum hætti.
Biden sagði einnig í viðtali sínu við PBS NewsHour að það væri gott og blessað að efast um upplýsingar og biðja um frekari útskýringar eða vera ósammála. Hins vegar hefði Trump haldið því fram opinberlega að hann vissi meira en leyniþjónusturnar.
Það væri eins og að segja: „Ég veit meira um eðlisfræði en kennarinn minn. Ég las ekki bókina. Ég bara veit að ég veit meira.“
Þá eru leyniþjónustur Bandaríkjanna sagðar hafa borið kennsl á þá aðila sem hafi komið gögnunum til Wikileaks þar sem þúsundir tölvupósta voru birtir. Julian Assange, stofnandi Wikileaks, hefur þó neitað fyrir að stjórnvöld ríkis hafi útvegað honum gögnin.
Þetta er sagt koma fram í leynilegri útgáfu skýrslunnar sem verður birt opinberlega í næstu viku. Barack Obama fékk skýrsluna í gær, auk annarra, og Trump mun fá hana í dag á fundi sínum með Clapper og Brennan.