Einbeittur brotavilji Orkuveitu Reykjavíkur Orri Hauksson skrifar 24. júlí 2017 07:00 Fyrir helgi birtist í Fréttablaðinu yfirlýsing frá stjórn Orkuveitu Reykjavíkur þar sem blessun er lögð yfir það framferði dótturfélags OR, Gagnaveitu Reykjavíkur, að hafna ýmiss konar samvinnu um grunninnviði, meðal annars að neita að opna svokallaðan passífan aðgang að ljósleiðaraneti sínu. Slíkur aðgangur er þó tryggður almennt í okkar heimshluta neytendum til hagsbóta. Hin hógværa ósk Símans er í samræmi við stefnu sem hefur verið mörkuð í fjarskiptaáætlun Alþingis og ESB-tilskipun frá 2014, sem er orðin að lögum í fjölda ríkja sambandsins og mun á endanum verða að lögum hér í gegnum EES-samninginn. Tilskipunin opnar opinber fjarskiptanet, ýtir undir samkeppni og val neytenda, skapar svigrúm fyrir nýsköpun og dregur úr tvífjárfestingu í grunninnviðum. Sá einfaldi aðgangur að innviðunum sjálfum, sem Síminn óskar eftir, er hvarvetna við lýði nema hjá OR. Meðal annars hjá Mílu, Tengi á Akureyri og á netum Hvalfjarðarsveitar og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Á öllum Norðurlöndunum er veittur slíkur aðgangur. Með samnýtingu framkvæmda og innviða á suðvesturhorninu má fría fjármagn úr offjárfestingu á svæðinu og auka fjárfestingar í innviðum þar sem þeirra er ríkari þörf. Ef Síminn mundi hins vegar undirgangast mónópólískan hugsunarhátt OR um eitt heildarkerfi á höfuðborgarsvæðinu væri Símasamstæðan þar með að ákveða að leggja niður eigin innviðatækni á svæði GR. Samkeppni og nýsköpun yrði útrýmt í tæknilagi fjarskipta og einn opinber aðili yrði í einokun í innviðum og allri aðgangstækni. Með framferði sínu fara OR og GR með einbeittum brotavilja gegn stefnumörkun ESB og Alþingis um að stuðla að samkeppni og fjölbreytni í þágu neytenda. Síminn hefur vonast til að koma á samstarfi við GR með þau markmið að leiðarljósi en ekki haft erindi sem erfiði. Er það mjög miður, fyrir notendur fjarskiptaþjónustu á landsvísu. Tíminn, lögin og skynsemin munu til lengri tíma ráða niðurlögum þessarar skammsýni borgarfyrirtækisins. Einfalt væri að sinna öllum Íslendingum mun betur mun fyrr. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Símaforstjóri segir opinbert fé vera misnotað í Gagnaveitunni Forstjóri Símans ber Gagnaveituna þungum sökum í bréfi til Orkuveitunnar og skorar á stjórnarmenn að tryggja að starfað sé í samræmi við lög“. Meirihluti stjórnar OR hefur áður hafnað aðfinnslum forstjórans. 19. júlí 2017 07:00 Mest lesið Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Fyrir helgi birtist í Fréttablaðinu yfirlýsing frá stjórn Orkuveitu Reykjavíkur þar sem blessun er lögð yfir það framferði dótturfélags OR, Gagnaveitu Reykjavíkur, að hafna ýmiss konar samvinnu um grunninnviði, meðal annars að neita að opna svokallaðan passífan aðgang að ljósleiðaraneti sínu. Slíkur aðgangur er þó tryggður almennt í okkar heimshluta neytendum til hagsbóta. Hin hógværa ósk Símans er í samræmi við stefnu sem hefur verið mörkuð í fjarskiptaáætlun Alþingis og ESB-tilskipun frá 2014, sem er orðin að lögum í fjölda ríkja sambandsins og mun á endanum verða að lögum hér í gegnum EES-samninginn. Tilskipunin opnar opinber fjarskiptanet, ýtir undir samkeppni og val neytenda, skapar svigrúm fyrir nýsköpun og dregur úr tvífjárfestingu í grunninnviðum. Sá einfaldi aðgangur að innviðunum sjálfum, sem Síminn óskar eftir, er hvarvetna við lýði nema hjá OR. Meðal annars hjá Mílu, Tengi á Akureyri og á netum Hvalfjarðarsveitar og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Á öllum Norðurlöndunum er veittur slíkur aðgangur. Með samnýtingu framkvæmda og innviða á suðvesturhorninu má fría fjármagn úr offjárfestingu á svæðinu og auka fjárfestingar í innviðum þar sem þeirra er ríkari þörf. Ef Síminn mundi hins vegar undirgangast mónópólískan hugsunarhátt OR um eitt heildarkerfi á höfuðborgarsvæðinu væri Símasamstæðan þar með að ákveða að leggja niður eigin innviðatækni á svæði GR. Samkeppni og nýsköpun yrði útrýmt í tæknilagi fjarskipta og einn opinber aðili yrði í einokun í innviðum og allri aðgangstækni. Með framferði sínu fara OR og GR með einbeittum brotavilja gegn stefnumörkun ESB og Alþingis um að stuðla að samkeppni og fjölbreytni í þágu neytenda. Síminn hefur vonast til að koma á samstarfi við GR með þau markmið að leiðarljósi en ekki haft erindi sem erfiði. Er það mjög miður, fyrir notendur fjarskiptaþjónustu á landsvísu. Tíminn, lögin og skynsemin munu til lengri tíma ráða niðurlögum þessarar skammsýni borgarfyrirtækisins. Einfalt væri að sinna öllum Íslendingum mun betur mun fyrr.
Símaforstjóri segir opinbert fé vera misnotað í Gagnaveitunni Forstjóri Símans ber Gagnaveituna þungum sökum í bréfi til Orkuveitunnar og skorar á stjórnarmenn að tryggja að starfað sé í samræmi við lög“. Meirihluti stjórnar OR hefur áður hafnað aðfinnslum forstjórans. 19. júlí 2017 07:00
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar